EcoProcura 2009 ráðstefna í Reykjavík um vistvæn innkaup

Opnað hefur verið fyrir skráningu á sjöundu alþjóðlegu EcoProcura ráðstefnuna um vistvæn innkaup en hún verður haldin í Reykjavík 25.–27. mars 2009. EcoProcura var síðast haldin í Barcelona 2006. Reykjavíkurborg og ICLEI, alþjóðleg samtök sveitarstjórna um sjálfbærni, standa fyrir ráðstefnunni. Samstarfsaðilar eru umhverfisráðuneytið, Ríkiskaup og Samband íslenskra sveitarfélaga.
Heiti ráðstefnunnar er „Climate Neutral Through Procurement” og verður athyglinni beint að því hvernig vistvæn innkaup geta leitt til minni losunar á gróðurhúsalofttegundum og auðveldað aðlögun að breyttum aðstæðum vegna loftlagsbreytinga. Á ráðstefnunni verður meðal annars fjallað um nýjar leiðir við framleiðslu á vörum og þjónustu til að sporna gegn neikvæðum áhrifum neyslusamfélagsins á umhverfi okkar.
Vonast er til þess að ráðstefnan veki umræðu um vistvæn innkaup hérlendis, hvetji til innleiðingu þeirra og auki framboð á visthæfum vörum og þjónustu. Ráðstefnan mun jafnframt vekja athygli á því ágæta starfi sem unnið er í umhverfismálum hérlendis á vegum sveitarfélaga, fyrirtækja og stofnanna.
Hægt er að skrá sig á ráðstefnuna á heimasíðu EcoProcura 2009 en frekari upplýsingar um ráðstefnuna og dagskrá hennar er einnig að finna á heimasíðu Umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar. Aðilar sem vinna að vistvænum innkaupum geta óskað eftir því að kynna starfsemi sína á ráðstefnunni en plássið er takmarkað. Fyrirtæki og stofnanir sem vilja leggja stund á vistvæn innkaup eiga erindi á ráðstefnuna.
Tenglar:
