Júlíus Vífill Ingvarsson

Júlíus Vífill býr að Hagamel 2. Hann er fæddur og uppalinn í Reykjavík, sonur Ingvars Helgasonar forstjóra og Sigríðar Guðmundsdóttur. Maki Júlíusar Vífils er Svanhildur Blöndal prestur. Þau eiga fjögur börn.
Netfang: jvi@reykjavik.is
Námsferill:
Stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík 1972
Embættispróf í Lögfræði frá Háskóla Íslands 1979
Tónlistarskólinn í Reykjavík 1973 - 1976
Söngskólinn í Reykjavík 1976 - 1977
Hochschule für Musik und Darstellende Kunst í Vínarborg 1977
Conservatorio G.B. Martini í Bologna á Ítalíu 1979 – 1982
Héraðsdómslögmannsréttindi 1993
Starfsferill:
Framkvæmdastjóri Ingvars Helgasonar hf. frá árinu 1982 - 2002 og einnig í Bílheimum ehf. 1993 – 2002. Stjórnarformaður sömu félaga 2002 – 2003
Óperusöngvari í Íslensku óperunni, Þjóðleikhúsinu með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Íslensku hljómsveitinni 1982-1988.
Borgarfulltrúi 1998 - 2002
Lögmannsstörf 2003 – 2006, síðast á Lögfræðistofu Reykjavíkur
Í stjórnum félaga og stofnana:
Í stjórn Bifreiðaskoðunar Íslands hf. 1992-1994.
Í stjórn Íslenska Hlutabréfasjóðsins hf. 1993-2002.
Í stjórn Íslensku Óperunnar frá árinu 1998, formaður frá árinu 2007.
Í stjórn Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá árinu 2002.
Formaður stjórnar Tónlistarskólans í Reykjavík frá árinu 2003.
Formaður stjórnar Nord-Rent ehf. frá 2004-2007
Formaður stjórnar Iceland Excursions ehf. frá 2005-2008.
Almenn félagsstörf:
Formaður Norræna laganemaráðsins NSJR 1974 – 1975
Framkvæmdastjóri Úlfljóts, fræðirits um lögfræði 1976 - 1977
Formaður Óperudeildar Félags Íslenskra leikara 1986 - 1989
Formaður söngvarasjóðs Óperudeildar Félags íslenskra leikara 1986 - 1993
Skipaður af menntamálaráðherra í nefnd til að gera tillögur um
framtíðarskipan óperumála á Íslandi 1988
Í stjórn Bílgreinasambandsins 1989 – 1994
Í Leiklistarráði 1986 – 1991, framkvæmdastjórn 1991
Í stjórn (varaformaður) Óperusmiðjunnar 1991 - 1993
Í stjórn Verslunarráðs Íslands 1992 - 2000
Formaður stjórnar Tónlistarfélags í Reykjavík frá árinu 2003
Í stjórn (framkvæmdastjórn) UNICEF frá 2003-2007
Pólitískur ferill:
Í stjórn Vöku og ritstjóri Vökublaðsins 1974 - 1975.
Í stjórn hverfafélags sjálfstæðismanna í nes og melahverfi 1996 – 2006.
Kosinn í borgarstjórn 1998
Borgarráð 1999 – 2002
Skipulagsnefnd 1998 – 2002
Menningarmálanefnd 1998 – 2002
Í sérskipaðri nefnd um framtíðarskipan tónlistarnáms í Reykjavík 2002
Í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur 1998 – 2002, varamaður
Miðborgarstjórn 1999 - 2002, varamaður
Í stjórn Ásmundarsafns 1999-2002
Nefndarstörf á vegum borgarinnar:
Formaður stjórnar Skákakademíu Reykjavíkur
Formaður dómnefndar hugmyndasamkeppni Faxaflóahafna sf. um Gömlu höfnina
Formaður Samvinnunefnd um svæðisskipulag á höfuðborgarsvæðinu
Stjórn AIVP (Association Internationale Villes et Ports)
Stjórn Austurhafnar
Menntaráð, formaður 2006-2008
Menningar- og ferðamálaráð 2006-2008
Formaður stjórnar Malbikunarstöðvarinnar Höfða hf. 2007-2008
Formaður stjórnar Miðborgar Reykjavíkur 2007-2008
Nefndir og ráð frá 15. júní 2010:
Borgarráð
Skipulagsráð
Stjórn Faxaflóahafna
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur, varamaður
Svæðisskipulagsráð SSH
Fulltrúaráð SSH, varamaður
Skrifstofa og viðtalstími:
Júlíus Vífill er með viðtalstíma miðvikudaga milli kl. 14:00 og 15:30.
Tekið er á móti tímapöntunum hjá upplýsingaþjónustu Ráðhússins í síma 411 4750.