Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Gísli Marteinn Baldursson

Gísli Marteinn BaldurssonFæddur 26. febrúar 1972.

Gísli Marteinn býr að Melhaga 12. Hann er fæddur og uppalinn í Reykjavík, sonur Baldurs Gíslasonar, skólameistara, og Elísabetar J. Sveinbjörnsdóttur, leikskólakennara og lengi forstöðumanns á leikskólanum Hólaborg. Maki Gísla er Vala Ágústa Káradóttir og eiga þau tvær dætur.

Netfang: gisli.marteinn.baldursson@reykjavik.is

Námsferill
Stúdent frá Verslunarskóla Íslands 1992
Nám í stjórnmálafræði í Háskóla Íslands sem er ólokið.
Dvaldi við háskólann í Tubingen í Þýskalandi í tengslum við ERASMUS stúdentaskiptaverkefnið veturinn 1996-1997

Starfsferill
Fréttamaður á Ríkissjónvarpinu 1997-1999.
Umsjónarmaður Kastljóssins 1999-2002.
Umsjónarmaður Laugardagskvölds með Gísla Marteini 2002-2005.
Fastráðinn starfsmaður Ríkissjónvarpsins.

Ritstörf
Bók aldarinnar ásamt Ólafi Teiti Guðnasyni, Nýja bókafélagið 1999.

Pólitískur ferill
Stjórnarmaður í Vöku, félagi lýðræðissinnaðra stúdenta, 1993-1994.
Formaður Vöku 1994-1995.
Í stúdentaráði fyrir Vöku 1994-1996.
Í stjórn stúdentaráðs 1995-1996.
Varaborgarfulltrúi 2002-2006.

Nefndastörf á vegum Reykjavíkurborgar
Umhverfis- og samgönguráð
Skipulagsráð
Hverfisráð Vesturbæjar, formaður
Svæðisskipulagsráð SSH, varamaður
Formaður borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins