Aftur á forsíðu borgarhlutans.
 Hausthátíð
 Laugardalsvöllur
Laugardalshöll

Félagslegar leiguíbúðir eru ætlaðar Reykvíkingum sem búa við mjög erfiðar félags- og fjárhagsaðstæður. Við vinnslu umsóknar skal leita upplýsinga m.a. um félagslegar aðstæður,  tekjur og eignir. 

1) Samkvæmt reglum um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur í Reykjavík, sem tóku gildi 1. mars 2004, þarf umsækjandi að uppfylla eftirtalin skilyrði:

  •  Eiga ekki möguleika á því að kaupa eigið húsnæði.
  •  Eiga lögheimili í Reykjavík þegar sótt er um og a.m.k. síðustu 3 ár áður en sótt er um.
  •  Að meðaltal tekna sl. 3ja ára sé undir ákveðnum tekju- og eignamörkum.
  •  Skora að lágmarki 4 stig vegna félagslegra aðstæðna sinna.
  •  Náð 18 ára aldri á umsóknardegi.

Hægt er að sækja um undanþágu frá skilyrðum um lögheimili og tekjuviðmið.

 

2) Til að umsókn taki gildi verður umsækjandi að mæta til viðtals hjá ráðgjafa á þjónustumiðstöð.

Úthlutun húsnæðis er byggð á mati á aðstæðum umsækjenda.


Allir sem sækja um félagslegt leiguhúsnæði fara í viðtal til ráðgjafa sem metur umsóknir með hliðsjón af stigagjöf. Símatímar vegna húsnæðismála eru mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10:00 til 11:00 í síma 411-1565.

Umsókn um félagslegt leiguhúsnæði (PDF skjal)
Þeir sem eiga lögheimili í Laugardal og Háaleiti sækja um félagslegt leiguhúsnæði hjá Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis  Síðumúla 39, 108 Reykjavík, sími: 411 1500.

Sérstakir símatímar vegna húsnæðismála eru mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10.00 til 11.00, s: 411-1565.

 

Reykjavíkurborg - Þjónustuver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is