Fjárhagsaðstoð
Fjárhagsaðstoð er veitt vegna framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem ekki geta séð sér og sínum farborða án aðstoðar sbr. IV. og VI. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, með síðari breytingum og sbr. reglur Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð.
Aðstoðin getur verið styrkur eða lán. Fjárhagsaðstoð skiptist í tvo meginflokka;
framfærslustyrk og heimildagreiðslur.
Framfærslustyrkur er veittur fólki 18 ára og eldri sem er tekjulaust eða hefur tekjur undir ákveðnum viðmiðunarmörkum.Viðmiðunarmörk fjárhagsaðstoðar fyrir einstakling er kr. 125.540,- á mánuði og fyrir hjón eða sambúðarfólk kr. 200.864,- á mánuði, að frádregnum tekjum. Aðstoðin er óháð fjölda barna, þar sem reiknað er með að barnabætur, meðlög og barnalífeyrir mæti kostnaði vegna barna. Einnig er hún óháð kostnaði vegna húsnæðis þar sem vaxtabætur og húsaleigubætur mæta mismunandi kostnaði vegna húsnæðis.
Heimildagreiðslur eru veittar einstaklingum og fjölskyldum vegna sérstakra aðstæðna, m.a. vegna félagslegs vanda og óvæntra áfalla. Í sumum tilfellum er skilyrði fyrir heimildargreiðslu að viðkomandi hafi haft tekjur við eða undir viðmiðunarmörkum (sjá hér að ofan) í ákveðinn tíma. Sem dæmi um heimildagreiðslur má nefna aðstoð vegna barna, námsaðstoð, greiðsla sérfræðiaðstoðar, styrkur til fyrirframgreiðslu húsaleigu og útfararstyrkur
Þeir sem búa í Laugardal og Háaleiti sækja um fjárhagsaðstoð í Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis, Síðumúla 39, sími 411-1500.
Reglur Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð. (PDF skjal).
Umsókn um fjárhagsaðstoð (PDF-skjal).
Umboð - fjárhagsaðstoð (PDF - skjal).
Allar nánari upplýsingar eru veittar í síma 411-1500.