Sérfræðiþjónusta við grunnskóla í Laugardals- og Háaleitishverfi.
Markmið:
Að veita markvissa og heildtæka þjónustu á þverfaglegum grunni til að mæta sérþörfum barna og fjölskyldna þeirra. Þjónustan er veitt á grundvelli þjónustusamnings á milli Menntasviðs, Velferðarsviðs og Íþrótta- og tómstundarsviðs annars vegar og Þjónustu- og rekstarsviðs hins vegar.
Skólateymi:
Á þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis er skólateyminu skipt eftir skólastigum í leikskólateymi og grunnskólateymi. Gætt er þó vandlega að samvinnu og upplýsingaflæði á milli teymana með skörun fundartíma beggja teyma. Hlutverk teymana er að vera vettvangur fyrir faglega umfjöllun um málsmeðferð, auk ákvarðanatöku um hvaða sérfræðingur/ar taki að sér vinnslu erindis.
Tilvísanir til skólateyma berast frá leik- og grunnskólum á þartilgerðum eyðublöðum í samvinnu við og með undirskrift forráðamanns.
Grunnskólateymi:
Grunnskólateymi er þverfaglegt teymi sem í sitja sálfræðingar, kennslu- og sérkennsluráðgjafi, félagsráðgjafar/unglingaráðgjafi og frístundaráðgjafi. Grunnskólateymið fundar vikulega á mánudögum.
Helstu verkefni sérfræðinga grunnskólateymis eru eftirfarandi:
Sálfræðiþjónusta
• Sálfræðilegar athuganir vegna gruns um frávik í þroska
• Ráðgjöf og eftir atvikum skammtímameðferð vegna frávika í vitsmuna-, tilfinninga- eða félagsþroska barns
• Ráðgjöf og fræðsla til foreldra, kennara og skólastjórnenda
• Umsjón og ráðgjöf vegna innleiðingar á sértækum úrræðum í skólum
• Tilvísanir til annarra greiningaraðila
• Taka þátt í nemendaverndarráðsfundum í grunnskólum
Kennslu- og sérkennsluráðgjöf:
• Ráðgjöf til starfsfólks grunnskóla
• Ráðgjöf vegna þróunar- og nýbreytnistarfs
• Ráðgjöf vegna barna af erlendum uppruna og vegna kennslu í íslensku sem öðru máli
• Ráðgjöf vegna barna sem eru í námslegum, félagslegum og / eða hegðunarlegum vanda
• Umsjón eða tengiliður vegna samstarfsverkefna
Félagsráðgjöf:
• Ráðgjöf við starfsfólk grunnskóla
• Fjölskylduráðgjöf
• Veita upplýsingar um félagsleg úrræði fyrir börn og foreldra þeirra
• Samráðsfundir, unglingaráðgjafi,frístundarráðgjafi Þjónustumiðstöðvarinnar, námsráðgjafi og eða skólastjórnendur, félagsmiðstöð og lögregla
• Athvarfsvaktir
• Maritafræðsla
• Einstaklingsmál
Sértæk úrræði í grunnskóla:
Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis hefur lagt áherslu á að styrkja faglega innviði skóla til að mæta þörfum barna með hegðunarfrávik. Í einstökum skólum hverfisins hafa sértækar aðferðir í samvinnu við starfsfólk skóla s.s. PBS (Positive Behavior Support) og ART (Aggression Replacement Training) verið innleiddar. Þetta eru aðferðir sem hafa það að markmiði að koma í veg fyrir eða draga úr hegðunarvanda skólabarna. Auk þess hefur verið stofnað til unglingahópa innan hverfisins í samvinnu við aðrar stofnanir til að efla sjálfsmynd og draga úr áhættuhegðun.
Við leitumst við að sinna hlutverki okkar af kostgæfni og ef þú hefur fyrirspurnir eða ábendingar um eitthvað sem betur má fara þá sendu okkur línu á helgi.hjartarson@reykjavik.is