Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Stuðningsúrræði í barnavernd

Stuðningsúrræði geta verið margvísleg og er úrræði valið í samráði við foreldra eða forsjáraðila barns og gerð áætlun um meðferð máls. Staða barnsins/fjölskyldunnar er höfð að leiðarljósi við val á stuðningsúrræðum og lögð á það áhersla að stuðningur sé markviss og falli að þörfum hvers og eins.

Sem dæmi um stuðningsúrræði má nefna :

  • Umsókn til þjónustumiðstöðvar um tilsjón, stuðningsfjölskyldu, viðtöl eða annan þann stuðning sem þjónustumiðstöðvar veita.
  • Stuðninginn heim en það er heiti á stuðningsúrræði þar sem starfsfólk kemur inn á heimili fjölskyldna og styrkir og leiðbeinir foreldrum við uppeldi og umönnun barnsins.
  • Fjölskyldumeðferð.
  • Rannsóknarvistun á vistheimili barna, vistun á einkaheimili, dvöl á fjölskylduheimili, unglingasmiðjum o.s.frv.
  • Umsókn til Barnaverndarstofu um greiningu og meðferð fyrir unglinga á Stuðlum, vistun til skemmri og lengri tíma á meðferðarheimilum fyrir börn og unglinga, tímabundið eða varanlegt fóstur fyrir börn og unglinga o.s.frv.
  • Umsókn fyrir barn eða ungling á Barna- og unglingageðdeild til greiningar og meðferðar.
  • Fundir með starfsfólki leikskóla, skóla, heilsugæslu til að koma á bættu samstarfi við foreldra eða forsjáraðila hafi því verið ábótavant.
  • Sálfræðiaðstoð eða önnur sérfræðiaðstoð sem Barnavernd greiðir fyrir samkvæmt mati.
  • Greiningu og mat á þroskastöðu, námsstöðu, félagslegri stöðu barns/unglings o.s.frv.
  • Þolendum kynferðisafbrota er vísað í Barnahús til greiningar og viðtala. Þegar við á er málum einnig vísað til lögreglu.

Ef ekki næst samstarf við foreldra eða forsjáraðila og ítrekaðar stuðningsaðgerðir hafa ekki orðið til þess að bæta hag viðkomandi barns/unglings þá getur niðurstaðan í vinnslu barnaverndarmáls verið að leggja málið fyrir Barnaverndarnefnd Reykjavíkur.