Stuðningsfjölskyldur
Hjá Reykjavíkurborg er veitt þjónusta í formi stuðningsfjölskyldna. Stuðningsfjölskyldur taka börn til dvalar á heimilum sínum reglubundið, oft eina eða tvær helgar í mánuði. Markmiðið er tvíþætt: annars vegar að hvíla foreldra, sem oftast eru einstæðir og njóta ekki stuðnings við uppeldið. Hins vegar að veita börnunum tilbreytingu, auka þekkingu þeirra og taka markvisst á hegðunar- og tilfinningalegum þáttum í fari þeirra.