Stuðningsþjónusta
Gerast stuðningsforeldri
Kvöld og helgarþjónusta
Sjá nánar um skjöl og yfirlit yfir umsóknir
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar veitir ýmiss konar stuðningsþjónustu þeim fjölskyldum og einstaklingum í Reykjavík sem á þurfa á stuðning við uppeldi og aðbúnað barna að halda. Með stuðningsþjónustu er átt við þjónustu á borð við liðsmenn, tilsjónarmenn og persónulega ráðgjafa sem og stuðningsfjölskyldur eneinnig félagslegan stuðning þ.e. stuðning við að rjúfa félagslega einangrun, stuðla að aukinni félagsfærni, aðstoð við að njóta menningar og félagslífs.
Stuðningsþjónusta er ekki gjaldskyld þjónusta. Notendum ber hins vegar að greiða fyrir sig allan kostnað sem hlýst af stuðningsþjónustu svo sem aðgangseyrir vegna kvikmynda- og leiksýninga, strætisvanga- eða rútuferða, veitingakostnað og fleira. Sótt er um á á Þjónustumiðstöðvum Reykjavíkurborgar og miðast við lögheimili umsækjenda.
Eftirfarandi skilyrði eru sett vegna stuðningsþjónustu:
• Eiga lögheimili í Reykjavík
• Þjónustan er fyrir 6 ára og eldri (stuðningsfjölskylda er þó undanskilin)
• Búseta utan stofnunar
• Fjölskylda/einstaklingur þarf á stuðningsþjónustu að halda v. félagslegra aðstæðna sinna skv. faglegu mati félagsráðgjafa á þjónustumiðstöð