Kattahald

Velkomin(n) á kynningarsíðu um reglur varðandi kattahald í Reykjavík

Þann 23. ágúst 2005 tók gildi ný samþykkt um kattahald í Reykjavík.  Markmiðið með endurskoðun eldri samþykktar um kattahald var að fækka óskilaköttum í borginni og skapa meiri sátt um kattahaldið.

Á þessar síðu átt þú að finna allar helstu reglur varðandi kattahald í borginni.  Hafir þú spurningar varðandi kattahald í borginni sem ekki er að finna svar við á þessari síðu þá vinsamlegast hafðu samband í síma 411 8500 eða á dyraeftirlit@reykjavik.is

Hér finnur þú endurskoðaða samþykkt um kattahald í Reykjavík

Hér finnur þú kynningarbækling varðandi kattahald í Reykjavík

Eigendum katta er nú skylt að láta örmerkja ketti sýna og tilkynna númer örmerkis til Umhverfissviðs Reykjavíkurborgar.  Smelltu hér til að skrá ömerki kattar. ATH notendur Internet Explorer 7 geta lent í vandræðum með skráningu.  Verið er að lagfæra skráningarkerfið og verður því líklega lokið fyrir 1. júní.  Beðist er velvirðingar á þessu.  

Færri óskilakettir

Á hverju ári berast rúmlega 500 óskilakettir sem finnast í borgarlandinu í Kattholt og er eingöngu um fjórðungur þeirra sóttur af eigendum sínum. Svæfa þarf um fjórðung en um helmingi er komið til nýrra eigenda.  Til að draga úr fjölda óskilakatta er eigendum katta nú skylt að merkja þá varanlega með örmerki. Örmerki er lítill kubbur sem dýralæknir kemur fyrir undir húð í herðakambi kattar og geymir 15 stafa númer. Umhverfissvið heldur skrá yfir merkta ketti og þangað verða eigendur að tilkynna númer örmerkisins og nafn eiganda.  Upplýsingum um númer örmerkis og nafn eiganda má koma til Umhverfissviðs í síma 411 8500, eða með skráningu á þessari síðu.  Til að almennir borgarar geti komið óskilaköttum til eigenda sinna er jafnframt nauðsynlegt og skylt að merkja ketti með hálsól þar sem fram kemur heimilisfang og símanúmer eiganda.

Í sátt við umhverfið

Í Reykjavík búa rúmlega 113 þúsund manns og hver og einn hefur sínar skoðanir á kattahaldi í borginni. Erfitt er að mæta að fullu kröfum allra en nýjum reglum er ætlað að skapa meiri sátt um kattahaldið. Samkvæmt endurskoðaðri samþykkt skal halda ketti þannig að ekki valdi hávaða, ónæði, óþrifnaði eða óhollustu. Ef köttur veldur nágranna ónæði, óþrifum eða tjóni, ber eiganda eða forráðamanni að koma í veg fyrir slíkt.  Til að lágmarka tjón sem kettir geta valdið fuglalífi í borginni ber eigendum að hengja bjöllu á ketti á varptíma fugla eða takmarka eftir atvikum útiveru katta.  Fresskettir merkja sér yfirráðasvæði sitt með illa lyktandi þvagi sem oft veldur miklu ónæði og óþrifnaði. Til að stemma stigu við óhóflegri fjölgun katta í borginni og til að draga úr ónæði og óþrifnaði af völdum fresskatta er eigendum þeirra nú skylt að láta gelda ketti sína eftir að þeir ná sex mánaða aldri gangi þeir lausir utandyra.  Samkvæmt lögum um fjöleignarhús nr. 26/1994 þarf samþykki þeirra eigenda sem hafa sameiginlegan inngang, stigagang eða annað sameiginlegt húsrými, fyrir kattahaldi í fjöleignarhúsi.

Heilsa og hollusta

Til að fyrirbyggja sýkingar í mönnum af völdum spóluorma í köttum skal ormahreinsa alla ketti árlega frá fjögurra mánaða aldri.

 Ýtið á tengilinn og sjáið svör við algengum spurningum varðandi kattarhald:
 Spurt og svarað um kattarhald



Umhverfis-og samgöngusvið
Reykjavíkurborgar
Borgartúni 12-14
Sími: 411 8500
Afgreiðsla - 8:20 - 16:15
umhverfissvid@reykjavik.is
Upplýsingar um sviðið

Reykjavíkurborg - Þjónustuver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is