03.07.2006
Hjólreiðar/ganga
Eflinga hjólreiðamenningar er ávinningur fyrir umhverfið. Sú efling tengist borgarbrag, sparnaði og betri heilsu. Flestir eiga hjól sem bíða í hjólageymslum eða -skúrm. Gott ráð til að koma sér af stað aftur gæti verið pumpa í dekkin um helgi og skreppa á því út í bakarí. Gott er að muna að þær stuttu vegalengdir sem Reykvíkingar fara á bifreiðum eru einnig stuttar á hjóli. Veðrið á Íslandi er sem betur fer oftast ágætt og um að gera að notfæra sér þau fjölmörgu skipti sem möguleiki er á að hjóla eða jafnvel rölta þessar stuttu vegalengdir.
Sjá: www.hjol.org