Umhverfisviðurkenning

Umhverfisviðurkenning Reykjavíkurborgar tíu ára
Íslensk erfðagreining hlaut viðurkenninguna

Íslensk erfðagreining ehf. hlaut Umhverfisviðurkenningu Reykjavíkurborgar 2006. ÍE er fyrirtæki sem starfar á sviði mannerfðafræði og lyfjafræði.  Starfshópurinn sem fór yfir tilnefningar til Umhverfisviðurkenningarinnar telur að Íslensk erfðagreining ehf. sýni  gott fordæmi í umhverfismálum og sé til fyrirmyndar fyrir rannsóknafyrirtæki jafnt sem önnur fyrirtæki. Starfsmenn ÍE eru upplýstir um umhverfismál og sýnir ÍE frumkvæði við að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum rekstrar síns. Fyrirtækið gengur að mörgu leyti töluvert lengra en lög og reglur gera ráð fyrir meðal annars með mengunarvarnarbúnaði á frárennsli. Viðurkenningin var veitt í tíunda sinn.

Árni Þór Sigurðsson formaður umhverfisráðs afhenti viðurkenninguna í Garðskálanum í Grasagarði Reykjavíkur. Umhverfissvið Reykjavíkurborgar hefur umsjón með framkvæmd umhverfisviðurkenningarinnar og skipaði starfshóp sem sá um úttekt á þeim fyrirtækjum sem tilnefnd voru í ár. Í starfshópnum núna voru Garðar Sigurþórsson,  Kristín Lóa Ólafsdóttir og Ómar Logi Gíslason heilbrigðisfulltrúar. Rökstuðningur starfshópsins við val sitt á Íslenskri erfðagreiningu ehf. er eftirfarandi:

Fyrirtækið uppfyllir ákvæði laga og reglna á sviði umhverfisverndar.
Fyrirtækið hefur sett sér umhverfisstefnu í siðareglum sínum sem það framfylgir með markvissum hætti.
Vinnuumhverfi starfsmanna jafnt innan dyra sem utan er til fyrirmyndar.
Húsnæðið er með tilfæranlega milliveggi og förgun efnis því í lágmarki þótt húsnæðinu sé breytt.  
Aðgengi fyrir fatlaða starfsmenn og viðskiptavini  er til fyrirmyndar.
Innra umhverfisstarf, t.d. flokkun á úrgangi, er til fyrirmyndar og skráð í bókhald.  Allir starfsmenn eru virkir þátttakendur í því og er vel búið að allri flokkunaraðstöðu. 
Fyrirtækið hefur öflugt innra eftirlit.
Fyrirtækið fylgir ströngum öryggisreglum sem ganga lengra en lög og reglur gera ráð fyrir og byggjast á erlendum kröfum.  Þetta á m.a. við vinnu með geislavirk efni og förgun á sóttmenguðu sorpi.
Mikið er hugað að öryggi og kunnáttu starfsmanna, s.s. með öflugri nýliðafræðslu og tíðum námskeiðum fyrir starfsmenn.
Öll efni til ræstingar og við bónun eru vistvæn og fylgt er lögum og reglum um efnanotkun og förgun spilliefna.  Jafnframt er fyllsta öryggis gætt við sóttvarnir.
Allur garðaúrgangur er jarðgerður og endurnýttur.
Mengunarvarnir fyrirtækisins eru til fyrirmyndar, m.a. eru olíuskiljur á frárennsli á bílastæðum, afsýringarbrunnar á frárennsli frá rannsóknarstofum og fituskilju á frárennsli frá eldhúsi.
Engar athugasemdir hafa komið fram frá Vinnueftirliti ríkisins.


Mikill áhugi starfsamanna ÍE
Eiríkur Sigurðsson kynningarstjóri Íslenskrar erfðagreiningar þakkar kærlega fyrir Umhverfisviðurkenninguna. „Hún hvetur okkur til dáða til að gera enn betur á sviði umhverfismála. Umhverfismál voru í öndvegi þegar hús ÍE við Sturlugötu var hannað og byggt. Þá má þakka góðu starfsfólki sem við höfum og öllum deildum þess. Svo má segja að samhliða því að við höfum verið að þróast meira yfir í að verða lyfjafyrirtæki höfum við farið að leggja enn meiri áherslu á stöðluð vinnubrögð við förgun úrgangs og annað sem tengist stöðluðum gæðakerfum,“ segir hann.

Eiríkur þakkar þó fyrst og fremst lifandi áhuga starfsmanna á umhverfismálum það að fyrirtækið skuli nú fá Umhverfisviðurkenningu. Hann vonar að viðurkenningin verði öðrum fyrirtækjum hvatning til að sinna umhverfismálum.

Áður hafa fengið viðurkenninguna ...
Þau fyrirtæki sem hlotið hafa verðlaunin fram til þessa eru: Prentsmiðjan Oddi, Olíuverslun Íslands, Árvakur – útgáfufélag Morgunblaðsins, GuðjónÓ prentsmiðja, Mjólkursamsalan, Farfuglaheimilið í Reykjavík, Umslag ehf., Skeljungur hf. og nú síðast Borgarholtsskóli við Mosaveg.

Tengill á rökstuðning

 



Umhverfis-og samgöngusvið
Reykjavíkurborgar
Borgartúni 12-14
Sími: 411 8500
Afgreiðsla - 8:20 - 16:15
umhverfissvid@reykjavik.is
Upplýsingar um sviðið

Reykjavíkurborg - Þjónustuver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is