Matvælaeftirlit
Deildin annast eftirlit með öryggi og heilnæmi matvæla í fyrirtækjum sem framleiða eða dreifa matvælum, svo sem matvælaverksmiðjum, mjólkur- og kjötiðnaði, verslunum, veitingahúsum og mötuneytum. Deildin annast eftirlit með öflun og dreifingu neysluvatns og umgengni á brunnsvæðum vatnsverndarsvæða og sýnatöku á neysluvatni. Rannsóknir matarsýkinga eru einnig í höndum deildarinnar, sem og vöktun vegna sjúkdómsvaldandi örvera í matvælum á markaði. Deildin hefur eftirlit með merkingum, kynningum og auglýsingum matvæla, með notkun aukefna í matvælum, að matvæli innihaldi ekki aðskota- og varnarefni og að þau uppfylli að öðru leyti þær kröfur sem til þeirra eru gerðar. Deildin hefur og með höndum útgáfu starfsleyfa til fyrirtækja sem framleiða og dreifa matvælum og gefur umsagnir til lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins vegna útgáfu rekstrarleyfa. Deildin útbýr fræðslu- og leiðbeiningarefni fyrir matvælafyrirtæki, starfsfólk þeirra og almenning.