Frístunda- og félagsstarfið í Breiðholti fyrir fólk á öllum aldri.
Til að sjá staðsetningu þjónustunnar á borgarkorti er hægt að smella á heimilisfangið.
Frístunda- og félagsstarfið Frístunda- og félagsstarfið
í Gerðubergi sími 575-7720 í Árskógum sími 535-2700
Gerðubergi 3-5 111 Reykjavík Árskógum 4 109 Reykjavík
Markmið frístunda- og félagsstarfs er að draga úr félagslegri einangrun og líkamlegri hrörnun þátttakenda. Með hæfilegri blöndu af lífsgleði og alvöru í hvetjandi og vinalegu umhverfi, ættu flestir að finna vettvang við sitt hæfi, þar sem þekking, reynsla, hæfileikar og frumkvæði hvers og eins fá að njóta sín. Allt miðar þetta að hjálp til sjálfshjálpar.
Frístunda- og félagsstarfið í Breiðholti er rekið af Velferðasviði Reykjavíkurborgar á þremur stöðum í Breiðholti:
í Árskógum 4, í Gerðubergi og í Seljahlíð.
Frístunda- og félagsstarfið í Árskógum 4 og í Gerðubergi eru starfstaðir undir stjórn Þjónustumiðstöðvar Breiðholts Álfabakka 12 109 Reykjavík.
Opið er í öllu frístunda- og félagsstarfi frá 9:00 – 16:30 virka daga.
Í öllum félagsmiðstöðvunum eru tölvur til reiðu og dagblöð liggja frammi fyrir gesti.
Frjáls aðgangur er að opnum rýmum til spilamennsku og til ýmiskonar hópa- og klúbbastarfs.
Helgistundir eru vikulega í hverri félagsmiðstöð undir stjórn presta/djákna frá hverfiskirkjum.
Greitt er mánaðarlegt þátttökugjald í Vinnustofur.
Ýmis námskeið eru í boði og greitt er sérstaklega fyrir þau á hverjum stað.
Í félagsmiðstöðvunum er hægt að kaupa sér hádegismat og síðdegiskaffi samkvæmt verðskrá Velferðasviðs.
Í frístunda- og félagsstarfinu er unnið fjölbreytt sjálfboðaliðastarf m.a. eru dagvistir, sambýli og ýmsar stofnanir heimsóttar með söng svo og er verkefnið “Kynslóðir saman” þar sem unnið er margvíslegt uppbyggingarstarf með leik- og grunnskólum í borginni.
Boðið er upp á hreyfingu af mörgu tagi t.d. leikfimi, dans, gönguferðir og ýmsa útiveru í félagsstarfinu Árskógum 4, Gerðubergi og Seljahlíð en einnig í ÍR – heimilinu Skógarseli 12 og Breiðholtslaug.
Á sumrin eru opnir púttvellir við Árskóga 4 og Breiðholtslaug en undanfarin sumur hafa leiðbeinendur frá Vinnuskóla Reykjavíkur verið á svæðinu fasta tíma.
Baðþjónusta er í boði í Árskógum en panta þarf með fyrirvara og þar eru reknar hárgreiðslu- og fótaaðgerðastofur.
Strætisvagnaleið 3, stansar við Árskóga, Gerðuberg og Seljahlíð en 4, 12 og 17 stansa við Gerðuberg og Mjódd.
Akstursþjónustu þarf að sækja um í Þjónustumiðstöð Breiðholts Álfabakka 12 í Mjódd, sími 411 1300.
Upplýsingar um hverfistengda þjónustu eru á www.breidholt.is og Þjónustumiðstöð Breiðholts Álfabakka 12 í Mjódd, netfang: breidholt@reykjavik.is sími 411 1300.
Unnið er að stofnun á nýju íþrótta, útivista og frístundafélagi í Breiðholti en að því starfi hafa t.d. íþróttafræðinemar úr Háskólanum í Reykjavík í samstarfi við frístunda- og félagsstarfið í Breiðholti komið.
Annað sem er á dagskrá frístunda- og félagsstarfsins er auglýst sérstaklega á stöðvunum.
Umsjón með félagsstarfinu í Árskógum hefur Elsa S. Haraldsdóttir elsa.s.haraldsdottir@reykjavik.is sími: 535-2700 Starfið er opið öllum
Umsjón með félagsstarfinu í Gerðubergi hefur Guðrún Jónsdóttir gudrun.jonsd@reykjavik.is
sími: 575-7720 Starfið er opið öllum
Umsjón með félagsstarfinu í Seljahlíð hefur Arngunnur Atladóttir arngunnur.atladottir@reykjavik.is sími: 540-2412 Flest sem boðið er upp á er opið öllum.