Umhverfiseftirlit
Umhverfiseftirlit annast eftirlit með fyrirtækjum sem eru eftirlits- og starfsleyfisskyld hvað varðar hollustuhætti og mengunarvarnir. Þar er um að ræða fyrirtæki sem veita almenningi þjónustu og fyrirtæki sem geta haft í för með sér mengun.
Fyrirtæki sem geta haft í för með sér mengun eru t.d. bensínstöðvar og ýmis starfsemi með bíla, starfsemi með dýr s.s.svína- og hænsnabú, prentiðnaður, skólphreinsistöðvar og endurvinnslustöðvar, flutningur á úrgangi og spilliefnum, véla- og smíðaverkstæði, mengandi matvælaiðnaður s.s. fisk- og kjötvinnslur, malbikunar- og steypustöðvar ásamt eftirlit með niðurrifi bygginga. Eftirlitið felst í að fylgjast með því að viðeigandi mengunarvarnir séu til staðar og að fyrirtækin uppfylli skilyrði laga, reglugerða og starfsleyfisskilyrða.
Deildin sér um eftirlit með hollustuháttum í fyrirtækjum sem veita almenningi þjónustu. Þetta eru m.a. skólar og leikskólar, barnagæsla, sund-, íþrótta- og heilsuræktarstarfsemi, snyrtistofur ásamt húðflúr- og húðgötunarstofum, heilbrigðisþjónusta og félagsleg þjónusta.
Haft er eftirlit með viðhaldi húsnæðis, þrifum, loftræsingu og öðru sem hefur áhrif á innivist ásamt því að fylgjast með því að fyrirtækin uppfylli skilyrði sem sett eru í starfsleyfi. Deildin annast eftirlit með öryggi á leiksvæðum barna, merkingum efnavara á markaði, hávaða og tóbaksvörnum Deildin sinnir eftirliti með íbúðarhúsnæði ef íbúar, oftast leigjendur, telja sig búa við heilsuspillandi eða ófullnægjandi aðstæður. Einnig sinnir deildin kvörtunum vegna umgengni um lóðir og lendur í borginni og ýmsu öðru sem tengist hollustu umhverfis. Útgáfa starfsleyfa og tóbakssöluleyfa ásamt því að vinna umsagnir um ýmis umhverfismál sem koma til afgreiðslu eða umsagnar hjá borginni. Fræðsla og leiðbeiningar er varða mengunarvarnir og hollustuhætti eru einnig hlutverk deildarinnar.