Íþrótta- og tómstundasvið

Nema hvað?

Nema hvað logo lítiðNema hvað? er spurningakeppni ÍTR fyrir unglingadeildir grunnskólanna í Reykjavík. Þriggja manna lið keppir fyrir hönd hvers skóla um farandgripinn Mímisbrunn sem gefinn er af ÍTR. Keppnin er útsláttarkeppni þar sem fyrst fer fram meistarakeppni í fjórum borgarhlutum Reykjavíkur. Meistarar hvers borgarhluta komast í undanúrslitakeppnina. Viðureignir keppnisliða fara fra og m í skólum eða félagsmiðstöðvum í hverfum borgarinnar eftir því sem við á.

Umsjónarmenn keppninnar eru Hilmar Þorsteinsson og Ásgeir Pétur Þorvaldsson, en þeir eru jafnframt spurningahöfundar og dómarar. Fyrirspurnum skal beint til nemahvad@itr.is og skráning fer einnig fram í gegnum netfangið.

Keppt er um Mímisbrunninn, farandgrip keppninnar, auk þess sem sigurskólinn fær eignarbikar. Hverfismeistarar fá jafnframt viðurkenningarskjöld fyrir árangur í keppninni.

Lið Hagaskóla 2008
Lið Hagaskóla sigraði Nema hvað? 2008


Bæjarháls 1

Íþrótta- og tómstundasvið
Reykjavíkur
Bæjarhálsi 1
Sími: 411 5000
itr@itr.is
Upplýsingar um ÍTR

Reykjavíkurborg - Þjónustuver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is