Siglunes, Nauthólsvík
Póstfang: Frístundamiðstöðin Kampur, Pósthússtræti 3-5, 101 Reykjavík
Sími: 551 3177
Netfang: siglunes@itr.is
Vefur Nauthólsvíkur
Deildarstjórar:
Árni Jónsson, arni.jonsson@reykjavik.is
Óttarr Hrafnkellsson, ottarr.hrafnkelsson@reykjavik.is
Allar nánari upplýsingar um sumarstarf í Siglunesi er að finna á sumarstarfsvef ÍTR.
Siglunes er í raun ævintýramiðstöð við sjóinn þar sem hressum og kjörkuðum krökkum gefst kostur á finna kröftum sínum og ævintýraþrá farveg. Í sumar verður boðið upp á siglinganámskeið fyrir 9–13 ára börn (fæðingarár 1996–2000), siglinganámskeið fyrir 14–16 ára (fæðingarár 1993–1995) og starfræktur er siglingaklúbbur fyrir 14–16 ára unglinga (fæðingarár 1993–1995) og þau sem hafa reynslu af siglingum og öðru bátasporti. Bátaleiga verður starfrækt í sumar.
Á sumrin starfa 12 starfsmenn í Siglunesi. Starfsfólk er á aldrinum 20-52 ára. Starfsfólk er fagfólk á vettvangi frítímans. Afar rík áhersla er lögð á þjálfun starfsfólks. Starfsfólk er þjálfað í notkun báta og búnaðar sem notaður er á námskeiðunum, skyndihjálp og hafa starfsmenn mikla þekkingu og reynslu á viðfangsefni námskeiðanna. Starfsfólk Siglunes leggur áherslu á að öllum þátttakendum í starfinu líði vel og að dagskrá námskeiðanna sé fjölbreytt, þroskandi og skemmtileg.
Skráning á siglinganámskeið
Sótt er um sumarnámskeið ÍTR á rafrænu formi á vefslóðinni http://rafraen.reykjavik.is/pages/. Hægt er að sækja um frá og með 1. apríl. Vinsamlega athugið að skráning á námskeiðin lýkur kl. 14.00 á föstudögum, eigi barn að geta byrjað á mánudeginum á eftir.
Athugið að ef foreldrar geta ekki nýtt sér rafræna innritun geta þeir farið á frístundamiðstöðvar ÍTR (helst fyrir hádegi) og á þjónustumiðstöðvar hverfanna og fengið aðstoð með skráningu. Ekki er hægt að skrá börn á sumarnámskeið í gegnum síma. Þjónustumiðstöðvar, frístundamiðstöðvar og Símaver Reykjavíkurborgar (s. 411 11 11) geta þó leiðbeint símleiðis ef forráðamenn eru við nettengda tölvu.