Ylströndin Nauthólsvík
Póstfang: Frístundamiðstöðin Kampur, Pósthússtræti 3-5, 101 Reykjavík
Sími: 511 6630
Netfang: ylstrond@itr.is
Vefur Nauthólsvíkur
Deildarstjórar:
Óttarr Hrafnkelsson ottarr.hrafnkelsson@reykjavik.is
Árni Jónsson arni.jonsson@reykjavik.is
Yfirlitskort Ylstrandar Nauthólsvík
Sumarið 2000 var tekin í notkun glæsileg Ylströnd í Nauthólsvík. Reistir voru voldugir sjóvarnargarðar og inn fyrir þá dælt gullnum skeljasandi. Innan garðanna er fallegt lón þar sem kaldur sjór og heitt vatn renna saman í eitt. Þessar aðstæður minna meira á strendurnar við sægrænt Miðjarðarhafið en vík í nyrstu höfuðborg heims við Norður-Atlantshafið. Markmiðið með þessum framkvæmdum var að gera Nauthólsvík að fjölbreyttu útivistarsvæði þar sem lögð er áhersla á útiveru, sólböð, sjóböð og siglingar líkt og tíðkaðist hér fyrr á árum.
Sumarið 2001 var tekin í notkun þjónustumiðstöð á Ylströndinni. Þar er búnings- og sturtuaðstaða fyrir baðgesti og þar er jafnframt hægt að kaupa léttar veitingar. Einnig er hægt að fá lánuð ýmis leiktæki bæði fyrir börn og fullorðna auk þess sem grill er á staðnum. Fyrir framan þjónustumiðstöðina er löng setlaug sem er um 38°C heit. Í flæðarmáli strandarinnar er uppstreymispottur til hitunar á lóninu sem jafnframt er íverustaður. Þessi framkvæmd hefur mælst gríðarlega vel fyrir og ekki hægt að segja annað en að Ylströndin hafi slegið í gegn eftir að hún var opnuð. Ófáir hafa lagt leið sína þangað og flatmagað í sólinni á sólríkum sumardögum.
Góð aðsókn hefur verið að Ylströndinni og koma að meðaltali 120.000 gestir á hverju ári á ströndina. Það er því óhætt að segja að ströndin hafi fest sig í sessi sem paradís í borgarlandinu sem laðar að jafnt innlenda sem erlenda gesti.
Afgreiðslutími
Sumaropnun er frá 15. maí til 14. ágúst og er opnunartími frá kl. 11:00-19:00 alla daga. Aðgangur að ströndinni, setlaugum, búningsklefum og salernum er ókeypis en greiða þarf 200 kr. fyrir að geyma föt í fatageymslu Ylstrandarinnar. Hitastig sjávarlónsins er um 18°-20°C að meðaltali þegar það er blandað með heitu vatni. Löng vera í lóninu getur því valdið ofkælingu, sérstaklega þegar börn eiga í hlut. Athugið að sjávarlónið er aðeins hitað á opnunartíma.
Vetraropnun Ylstrandar er á mánudögum kl. 17.00-19.00 og á miðvikudögum kl. 11.00-13.00 og kl. 17.00-19.00. Ókeypis er í búningsklefa, sturtur og heitan pott. Hægt er að kaupa kaffi, gos og gotterí í Strandkaffi, veitingasölu Ylstrandar.
Reglur
Börnum yngri en 8 ára er óheimill aðgangur nema í fylgd synds einstaklings, 14 ára eða eldri. Æskilegt er að fullorðinn einstaklingur hafi aðeins tvö börn í sinni umsjá á ströndinni. Gestir Ylstrandarinnar eru á eigin ábyrgð, öryggisgæsla er á svæðinu en ekki er boðið upp á barnagæslu. Reykingar, neysla áfengis, hundahald og umferð reiðhjóla og ökutækja er með öllu bönnuð á Ylströndinni. Gestir strandarinnar eru vinsamlegast beðnir um að virða þær reglur.
Bláflaggið
Evrópska úrskurðarnefndin fyrir Bláflaggið 2008 hefur gefið út að Ylströndin í Nauthólsvík hafi lagt fram gögn þess efnis að baðstaðurinn uppfylli allar kröfur sem gerðar eru til baðstranda sem fá að flagga Bláflagginu. Bláflaggið er trygging baðgesta fyrir góðu umhverfi. Það er örugg vísbending um hrein og örugg baðsvæði þar sem njóta má baða og útiveru auk þess sem það á að vekja vitund almennings um mikilvægi umhverfisverndar.
Gjaldskrá Ylstrandar
Aðgangur að strönd, heitum pottum og sturtum er ókeypis!
Leiga á handklæði 200 kr.
Geymsla á fatnaði 200 kr.