SUÐURLANDSVEGUR - TVÖFÖLDUN FRÁ VESTURLANDSVEGI AÐ HÓLMSÁ

6. mars 2009/ Tillaga að matsáætlun lögð inn til málsmeðferðar hjá Skipulagsstofnun
Tillaga að matsáætlun fyrir Suðurlandsveg frá Vesturlandsvegi að Hólmsá hefur verið lögð inn til málsmeðferðar hjá Skipulagsstofnun skv. lögum um mat á umhverfisáhrifum. EFLA verkfræðistofa verkstýrir mati á umhverfisáhrifum fyrir hönd framkvæmdaraðila. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir. Hægt er að koma skriflegum athugasemdum við tillögu að matsáætlun til Skipulagsstofnunar. Hægt er að nálgast eintak af tillögu að matsáætlun hér:
Tengill:
Tillaga að matsáætlun - mars 2009
... Eldri frétt um drög að tillögu:
SUÐURLANDSVEGUR - TVÖFÖLDUN FRÁ VESTURLANDSVEGI AÐ HÓLMSÁ
Drög að tillögu að matsáætlun. Febrúar 2009
Vegagerðin áformar að tvöfalda Suðurlandsveg frá vegamótum Vesturlandsvegar að Hólmsá ofan Reykjavíkur. Aðlaga þarf tengingar mislægra vegamóta við Bæjarháls og tengingar við hringtorg við Breiðholtsbraut. Tvöfalda þarf hringtorg við Norðlingavað og byggja veggöng og aðlaga tengingu við Heiðmörk. Byggð verða mislæg vegamót við Hafravatnsveg og aðlaga þarf lýsingu, reið-, hjóla og gönguleiðir að nýjum tvöföldum vegi. Byggður verður 2 + 2 vegur og tengingum verður fækkað frá því sem nú er. Markmið framkvæmdarinnar er að auka umferðaröryggi og tryggja greiðari umferð um Suðurlandsveg með því að aðskilja akstursstefnur. Vegurinn verður byggður í áföngum.
Drög að tillögu að matsáætlun eru nú til kynningar fyrir almenning í rúmar tvær vikur, til og með 2. mars 2009, áður en þeim verður skilað inn til formlegrar umfjöllunar hjá Skipulagsstofnun. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir. Hægt er að koma ábendingum og athugasemdum við drög að tillögu að matsáætlun til verkfræðistofunnar Eflu á netfangið arni.bragason@efla.is með fyrirsögninni "Suðurlandsvegur – tvöföldun – Vesturlandsvegur að Hólmsá". Hægt er að nálgast drög að tillögu að matsáætlun hér fyrir neðan.
Tenglar:
Drög að tillögu að matsáætlun
Kynning
Ljósmynd
www.vegagerdin.is
www.efla.is
Senda á athugasemdir á Árna Bragason fyrir til 2. mars 2009: arni.bragason@efla.is
__________eldri kynningar:__________________________________
Tillögur að stokki og jarðgöngum frá Sæbraut að Ánanaustum Hallsvegur - Úlfarsfellsvegur og mislæg gatnamótGeirsgata kynningKringlumýrar- og Miklubraut, kynning,