Atvinnumálahópur Reykjavíkurborgar
Atvinnumálahópur Reykjavíkurborgar fylgist með þróun og metur áhrif atvinnuleysis í Reykjavík og var skipaður í nóvember á síðasta ári í kjölfar alvarlegs efnahagsástands.
Hlutverk Reykjavíkurborgar gagnvart atvinnuleysisvandanum er, að mati starfshópsins, að miðla, styðja, hvetja og virkja. Hópurinn hefur fjallað náið um atvinnumál ungs fólks, fylgst vel með þróun mála á velferðarsviði auk þess sem nýjustu tölur um þróun atvinnuleysis eru fastur liður á dagskrá hópsins. Hópurinn hefur jafnframt forgöngu um að nýliðið sumar verði metið sérstaklega með tilliti til ungs fólks á aldrinum 13-18 ára. Þann 1. september síðastliðinn fól borgarstjórn Reykjavíkur atvinnumálahópnum að móta leiðbeinandi viðmið um forgangsröðun í atvinnumálum vegna vinnu við fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar. Að auki fól borgarráð hópnum að marka stefnu um þjónustu borgarinnar fyrir ungt fólk sem hvorki fótar sig í framhaldsnámi né á vinnumarkaði.
Hópinn skipa
Oddný Sturludóttir, Samfylkingu, formaður
Sóley Tómasdóttir, VG
Jórunn Ósk Frímannsdóttir Jensen, Sjálfstæðisflokki
Rafn Einarsson, Framsóknarflokkur
Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir, F-listi
Ellý A. Þorsteinsdóttir, Velferðarsviði
Markús H. Guðmundsson, Hitt húsið
Sigurður Snævarr, borgarhagfræðingur.
Guðfinnur Þór Newman, skrifstofa borgarhagfræðings
Helga Björg Ragnarsdóttir sem stýrir sértækum atvinnuátaksverkefnum, Hallur Páll Jónsson, mannauðsstjóri og Anna Kristinsdóttir mannréttindastjóri starfa með hópnum að ákveðnum verkefnum.
Ef fólk vill senda erindi til hópsins er netfangið: atvinnumalahopur@reykjavik.is.
Fundargerðir atvinnumálahóps
Ítarefni
Tillaga til Borgarráðs 3. febrúar 2010
Tillaga til Borgarráðs um úthlutun fjármagns til atvinnumála – 3. febrúar 2010
Leiðbeinandi viðmið um forgangsröðun í atvinnumálum. (pdf 830 KB)