Fjölmenning í leikskóla

Mikilvægt er að leikskólastarf í nútíma samfélagi endurspegli þann menningarlega margbreytileika sem þar er alla daga ársins. Fjölmenningarlegt leikskólastarf tekur mið af því að enginn er eins en allir geta verið með á sínum forsendum. Í því felst meðal annars að:
- -Styrkleikur samfélagsins felst í fjölbreytni, það er í lagi að vera ólíkur öðrum.
- -Nám, kennsla og samskipti eru án fordóma.
- -Það er borin virðing fyrir öllum.
- -Börn læra um heimamenningu hvers annars.
- -Lögð er áhersla á að efla samvinnu og samkennd í barnahópnum.
- -Leitast er við að byggja upp jákvæða sjálfsmynd allra barna þannig að þau geti sýnt styrkleika sinn og þekkingu.
- -Leikefni og umhverfi barnanna sýnir fjölbreytni í allri sinni mynd.
- -Unnið er með ólík tungumál og ritmál.
- -Kennarar þekkja leiðir til að kenna íslensku sem annað mál.
Hugmyndafræðin sem liggur til grundvallar efni á þessum vef er að mestu ættuð frá Bretlandi og Bandaríkjunum. Meira um fjölmenningarlega hugmyndafræði .
Sjá einnig kynningarbækling um vefinn pdf
Hægt er að prenta veggspjaldið hér til hliðar út: Heimurinn er hér - Velkomin í leikskólann.
einnig veggspjaldið: Heimurinn er hér - Leikum saman
NÝTT!
Vörður á lífsleið barna. Málþing um trú og trúarbrögð í uppeldi verður haldið í Bratta, Menntavísindasviði HÍ við Stakkahlíð þriðjudaginn 27. apríl n.k. frá kl. 13:00-17:00. Dagskrá málþingsins og skráning auglýst síðar en málþingið er opið fyrir alla og aðgangur ókeypis.
Fjölskyldumorgnar í Borgarbókasafni Reykjavíkur
Í Borgarbókasafninu er nú boðið upp á vikulega fjölskyldumorgna í aðalsafni og Gerðurbergssafni þar sem fjölskyldum með ung börn er boðið að koma í safnið og eiga þar notalega samverustund. Eitt af markmiðum fjölskyldumorgnanna er að veita fjölskyldum ungra barna óformlega fræðslu um ýmis málefni sem varða börn og uppeldi. Fjölskyldumorgnarnir eru hluti af barna- og fjölmenningarstarfi Borgarbókasafns og samstarfsverkefni safnsins, Menningarmiðstöðvarinnar Gerðubergs og Leikskólasviðs Reykjavíkurborgar. Hægt er að fylgjast með dagskránni og prenta út auglýsingar á heimasíðu Borgarbókasafns, og einnig á Facebooksíðunni Fjölskyldumorgnar á bókasafninu.
Eitthvað fyrir þig?
Á heimasíðu ÍTR er hægt að skoða rafrænar upplýsingar á 5 tungumálum um tómstundatilboð fyrir Reykvísk börn.
FJÖLVAKI
Fjölvaki er vefur þar sem efni tengt fjölmenningu er vaktað og birt á einum stað. Markmiðið með vefnum er m.a. að birta íslenskt vefefni sem víða er til á erlendum málum, vísa á fjölbreytt námsefni sem hentar til kennslu íslensku sem annars máls, vísa á gagnlega orðalista, lausnir og verkefæri á neti sem gagnast við íslenskukennslu, upplýsingamiðlun og samskipti á ólíkum tungumálum.
Hér getið þið skoðað FJÖLVAKA
Hugmyndavefurinn Börn og tónlist er mjög skemmtilegur tónlistarvefur fyrir leikskóla með ótal skemtilegum hugmyndum að tónlistarstarfi með börnum. Undir liðnum Fjölþjóðlegt er hægt að finna mikið af efni sem hægt er að nýta í fjölbreyttum barnahópum og þar sem unnið er með ólíka menningu.
Upplýsingar á milli heimilis og skóla
Gagnabanki með upplýsingum á milli heimilis og skóla er kominn á heimasíðu Leikskólasviðs. Þar er að finna orðalista á 10 tungumálum og fjölmörg bréf s.s. eins og: lokað vegna skipulagsdags, eyðublað v. ofnæmis, vettvangsferð, foreldraviðtal og margt fleira. Allar þýðingarnar eru bæði á íslensku og viðkomandi tungumáli og hægt er að fylla inn í eyðublöðin rafrænt. Efnið er vistað á síðunni: Nýir íslendingar.
Hægt er að prenta veggspjöldin út hér: Heimurinn er hér - Leikum saman og Heimurinn er hér - Velkomin í leikskólann.