04.10.2007
Málþing um snemmtæka íhlutun í leikskóla
Föstudaginn 12. október kl. 13 verður haldið málþing á vegum Þjónustumiðstöðvar Laugardals og Háaleitis um snemmtæka íhlutun í leikskóla í salnum Bratta í KHÍ.
Snemmtæk íhlutun sem oftast er skilgreind sem "þjónusta við börn á aldrinum 0-6 ára sem hefur það að markmiði að koma í veg fyrir eða draga úr áhrifum þroskavandamála barna" er áhersluþáttur í stefnukorti Leikskólasviðs varðandi verklag í sérkennslu og jafnframt hluti af 10 ára framtíðarsýn í stefnu Reykjavíkurborgar í menntamálum.
Á málþinginu býðst því einstakt tækifæri á að fræðast um snemmtæka íhlutun, s.s. hugmyndafræði, framkvæmd, gæðaviðmið þjónustu og reynslu leikskóla (sjá dagskrá).
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á netfangið helgi.hjartarson@reykjavik.is eða orri.smarason@reykjavik.is
Dagskrá:
Snemmtæk íhlutun í leikskóla
Málþing haldið í salnum Bratta KHÍ 12. október 2007
13:00-13:05 Setning
13:05-13:35 Hvað er snemmtæk íhlutun?
Dr. Tryggvi Sigurðsson, sérfræðingur í fötlunum barna og sviðstjóri þroskahömlunarsviðs Greiningar og ráðgjafarstöðvar ríkisins
13:35-14:05 Er ekki kominn tími til að tengja? - Hugleiðingar um framkvæmd snemmtækrar íhlutunar
Jóna Guðbjörg Ingólfsdóttir, aðjúnkt við Kennaraháskóla íslands og sérkennsluráðgjafi á þjónustumiðstöð Vesturbæjar
14:05-14:25 Snemmtæk íhlutun í leikskólanum Múlaborg
Rebekka Jónsdóttir, leikskólastjóri og Brynhildur Guðmundsdóttir, sérkennslustjóri
14:25-14:40 Kaffi
14:40-15:00 EISAS matslistinn – mat á gæðum snemmtækrar íhlutunar
Helgi Hjartarson, deildarstjóri á Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis
15:00-15:35 Vinnubrögð til að fyrirbyggja og takast á við erfiða hegðun
Dr. Anna Lind Pétursdóttir, sálfræðingur og verkefnisstjóri á Leikskólasviði Reykjavíkur
15:35-16:00 PBS í leikskólanum Suðurborg
Hulda Magnúsdóttir, Bergey Hafþórsdóttir og Siggerður Á. Sigurðardóttir sérkennslustjóri
- Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis er þekkingarstöð um málefni fatlaðra.