Skrifstofa náttúru og útivistar

Skrifstofa náttúru og útivistar hefur það að leiðarljósi að gera borgina fallegri og skjólbetri og skapa borgarbúum aðstöðu til leikja og útiveru. Skrifstofan annast viðhald allra skrúðgarða borgarinnar sem og trjágróðurs og blómabeða á opnum svæðum og stofnanalóðum. Skrifstofan sér um nýbyggingar leiksvæða og útivistarsvæða og annast gróðursetningar trjábeða á grænum svæðum. Garðyrkjudeild hefur umsjón með og annast ræktun og gerð náttúrustíga í útmörkinni, þ.e. á skógræktarsvæðum og stöðum þar sem náttúrulegt yfirbragð er látið halda sér í meginatriðum. Ræktunarstöð Skrifstofunnar sér um ræktun trjáplantna, sumarblóma og kálplantna fyrir borgargarðana. Garðyrkjudeild sér um rekstur skólagarða og leigu garðlanda til matjurtaræktunar. Garðyrkjudeild rekur Grasagarð Reykjavíkur, þar sem gefur að líta stóran hluta íslensku flórunnar ásamt fjölbreyttu úrvali erlendra plantna.
Skrifstofa náttúru og útivistar hefur umsjón með náttúruverndarmálum í Reykjavík og Vinnuskóla Reykjavíkur.