Íþrótta- og tómstundasvið

Sundhöllin

Sundhöllin

Arkitektar   Guðjón Samúelsson
Byggingarár   1929 - 1937
   Vígslan var 23. mars 1937
Saga byggingarinnar
Í æviminningum Knud Zimsen, bæjarverkfræðings 1902, kemur fram að hann gerði tillögu að byggingu yfirbyggðrar sundlaugar í Reykjavík, tillagan fékk ekki hljómgrunn í bæjarstjórn Reykjavíkur.

Árið 1927 kemur  Jónas frá Hriflu með þá hugmynd að ríkissjóður leggði fram 50 þúsund krónur í Sundhallarbyggingu gegn því að bæjarsjóður legði fram jafn háa upphæð, tilllagan var ekki samþykkt.
Árið 1928 bar ríkisstjórnin fram frumvarp um byggingu Sundhallar í Reykjavík, frumvarpið hljóðaði uppá að ríkið leggði fram 100 þúsund krónur og að borgin legði fram annað eins auk lóðarinnar.

Fyrri uppdráttur Guðjóns Samúelssonar af SundhöllinniFyrsta tillaga Guðjóns Samúelssonar var bygging í burstabæjarstíl laugin átti að vera þrískipt, ein laugin átti að vera fyrir börn, önnur stærri fyrir íþróttamenn, sú þriðja átti að vera sjólaug. Hætt var við að byggja eftir fyrstu tillögu Guðjóns, en árið 1929 var byrjað á að byggja Sundhöllina í þeirri mynd sem hún er í dag. Í nokkur ár gekk hvorki né rak með bygginguna vegna fjárskorts. Sundhöllin var loksins tekin í notkun 24. mars 1937.

 STÆRÐ BYGGINGAR  2.661,8 m2  Rúmmál  9.590,4 m3
 STÆRÐ LÓÐAR  5.250 m2  Fjöldi bílastæða  30

 AÐALLAUG  L: 25 m., B: 10 m.

 Mesta dýpi 4,00 m.,  

 Flatarmál laugar er 250 m2  Heildarvatnsmagn 780 m3  Hitastig 29°C

 BARNALAUG  L: 7,2 m., B: 10 m.          

 Mesta dýpi 1,10 m., 

 Flatarmál laugar er 72 m2      Hitastig 32°C

 HEITIR POTTAR  

 Nuddpottur              Hitastig 37-39°C 

 16,7 m² 17,6 m³

 Heitur pottur  Hitastig 40-42°C  10,4 m² 10,9 m³

 EIMBAÐ  Opnað árið 2001                                                  

 6,9 m²   17,3 m³                   

 

SundhöllinLeiktæki
Tvö stökkbretti eru í lauginni það lægra er 1,0 m frá vatnsyfirborði það hærra 2,75 m frá vatnsborði.

Forstöðumenn frá upphafi  
Ólafur þorvarðarson  1937-1942
Sigríður Sigurjónsdóttir  1942-1945
Þorgeir Sveinbjarnarson  1945-1971
Hermann Hermannsson  1971-1975

Ingibjörg Sigurgeirsdóttir
og Lilja Kristjánsdóttir

 1975-1983
Kristján Ögmundsson  1983-1986
Stefán Kjartansson  1986-1993
Bjarni Kjartansson  1993-1998
Björg Snjólfsdóttir  1998-1999
Gísli Jensson  1999-2005
Óttarr Hrafnkellsson  2005-2005
Katrín Lovísa Irvin  2005-

Bæjarháls 1

Íþrótta- og tómstundasvið
Reykjavíkur
Bæjarhálsi 1
Sími: 411 5000
itr@itr.is
Upplýsingar um ÍTR

Reykjavíkurborg - Þjónustuver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is