Málið - mælsku- og rökræðukeppni ÍTR fyrir grunnskólana í Reykjavík
Haustið 2007 setur ÍTR á fót mælskukeppnina Málið fyrir unglingadeildir grunnskólanna í Reykjavík. Keppninni er ætlað að skapa vettvang fyrir unglinga sem áhuga hafa á ræðumennsku. Keppnisfyrirkomulag er með svipuðu sniði og verið hefur í spurningakeppninni Nema hvað?, þ.e. keppt er í fjórum borgarhlutum um hverfismeistaratitil og hverfismeistararnir keppa svo innbyrðis í úrslitakeppninni.
Nú er skráningu lokið fyrir veturinn og alls hafa átta skólar tilkynnt þátttöku. Ákveðið var að sníða tímaáætlun keppninnar í ár að fjölda skráðra liða og því verður keppt í einum riðli í stað fyrirhugaðra hverfismeistarakeppna.
Þriðjudaginn 2. október, var svo kynningarfundur þar sem dregið var í viðureignir fyrstu umferðar. Að auki var dregið um umræðuefni fyrir hverja viðureign úr potti af innsendum hugmyndum frá keppnisliðunum. Allar nánari upplýsingar um viðureignir og staðsetningar er að finna hér.
Kynningarbréf 2007-2008
Dómarablað 2007-2008