Karl Sigurðsson formaður umhverfis- og samgönguráðs
15.06.2010
Umhverfis- og samgönguráð Reykjavíkur verður umhverfis- og auðlindaráð og er því meðal annars ætlað að móta orku- og auðlindastefnu borgarinnar, segir í samstarfsyfirlýsingu Besta flokksins og Samfylkingarinnar sem kynnt var í dag, 15. júní. Ráðið á að tryggja sameiginlegt eignarhald borgarbúa á auðlindum borgarlandsins og kveða á um eðlilegt afgjald af þeim.
Forgangsmál til framtíðar verða orkuskipti í samgöngum og rafvæðing þeirra, m.a. er stefnt að því að önnur hver bifreið í Reykjavík verði knúin vistvænni innlendri orku innan áratugar.
Ráðið mótar og setur skilgreind og tímasett markmið um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda í Reykjavík. Þá mun ráðið og Umhverfis- og samgöngusvið sjá til þess að borgin gangi fram með góðu fordæmi með því að endurnýja bílaflota hennar með raf- og metanknúnum bifreiðum.
Áhersla verður lögð á að vernda græna trefilinn umhverfis höfuðborgarsvæðið og ströndina þar sem hún er ósnortin.
Borgin á að sýna gott fordæmi með því að setja stofnunum og fyrirtækjum borgarinnar metnaðarfulla umhverfis- og samgöngustefnu með mælanlegum markmiðum. Þá verður leitast við að styrkja nafn Reykjavíkur sem miðstöð í rannsóknum á málefnum norðurslóða, loftslagsbreytinga, jarðhita og endurnýtanlegum orkugjöfum.
Stórauka endurvinnsla í Reykjavík verður meðal verkefni ráðs og sviðs. Loks verður kannaður grundvöllur fyrir því að umhverfisvotta Reykjavík. Þá verður ráðinu falin verkefni heilbrigðisnefndar.

Kosið var í umhverfis- og samgönguráð til fjögurra ára. Sjö aðalmenn og sjö til vara; formannskjör. Kosin voru af DSVÆ lista án atkvæðagreiðslu:
Karl Sigurðsson formaður.
Hjördís Sjafnar Ingimundardóttir
Hjálmar Sveinsson
Kristín Soffía Jónsdóttir
Gísli Marteinn Baldursson
Hildur Sverrisdóttir
Þorleifur Gunnlaugsson
Varamenn eru kosnir með sama hætti.
S. Björn Blöndal
Margrét Vilhjálmsdóttir
Kjartan Rolf Árnason
Kristín Erna Arnardóttir
Árni Helgason
Pawel Bartoszek
Claudia Overesch