Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Skráning í Vinnuskólann hefst í næstu viku

09.04.2010

Búist er við að 3500 nemendur starfi í Vinnuskóla Reykjavíkur í sumar. Skráning hefst 14. apríl í Rafrænni Reykjavík og verður sú nýbreytni tekin upp að foreldrar sjá um skráninguna í samráði við krakkana. Nemendum úr 8.-10. bekk grunnskóla býðst starf í Vinnuskólanum.

Vinnutímabilið í sumar spannar sjö vikur og þurfa nemendur að velja með foreldrum sínum þær vinnuvikurnar sem til greina koma. Nemendur vinna ýmist þjár til fjórar vikur. Reynt verður að koma til móts við flestar óskir. Rafræn reykjavík er á heimasíðu borgarinnar, www.rafraen.reykjavik.is. Þar skrá foreldrar börn sín einnig á námskeið hjá borginni og á frístundaheimili. 

„Vinnuskólinn er í langflestum tilvikum fyrsti vinnustaður unglinga. Þeir eru á forræði foreldra sinna og því er eðlilegt að þeir skrái börnin sín í vinnuskóla í samráði við þau. Foreldrar sem hafa ekki lykilorð að Rafrænni Reykjavík geta fengið það sent í heimabankann eða heim til sín, “segir Guðrún Þórsdóttir skólastjóri Vinnuskólans.

Foreldrar af erlendu bergi brotnu geta leitað eftir aðstoð við að skrá börn sín í Vinnuskólann hjá námsráðgjöfum skólanna.

Tenglar

Vinnuskóli Reykjavíkur

Rafræn Reykjavík