Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Starfsmannastefna Reykjavikurborgar

Markmiðið með starfsmannastefnunni er að Reykjavíkurborg hafi alltaf á að skipa hæfum og áhugasömum starfsmönnum sem geta tryggt nauðsynlegt frumkvæði í störfum og veitt góða þjónustu og brugðist við síbreytilegum þörfum Reykjavíkurborgar.
Starfsmannastefnan á að tryggja starfsmönnum ákveðin starfsskilyrði og möguleika á að vaxa og dafna í starfi. Leitast skal við að skapa starfsmönnum aðstæður til að samræma starf og fjölskyldulíf.

Leiðarljós

• Virðing fyrir fólki
• Samvinna og sveigjanleiki
• Jafnræði
• Þekking og frumkvæði
• Þjónustulund

Í þessu felst að stofnanir og fyrirtæki Reykjavíkurborgar:
• Virða alla starfsmenn sína og viðhorf þeirra mikils.
• Virkja starfsmenn til að móta og bæta starfsemina.
• Starfa í anda jafnræðis og jafnréttis.
• Bjóða upp á verkefni þar sem hæfileikar hvers og eins fá notið sín.
• Stuðla að því að starfsmenn geti aukið þekkingu sína og starfshæfni.
• Leggja áherslu á gæði starfs og hátt þjónustustig.
• Upplýsa starfsmenn um hlutverk þeirra og ábyrgð.

Þetta gerir þær kröfur til starfsmanna að þeir:
• Virði samstarfsmenn sína.
• Séu viðbúnir þróun og breytingum og taki þátt í þeim.
• Viðhaldi þekkingu sinni og auki við hana.
• Sinni starfi sínu af trúmennsku og metnaði.
• Sýni ábyrgð.

Starfsmannastefna í heild sinni; prentvæn útgáfa

Starfsmannastefna; ensk útgáfa (English-Human Resource Policies)