Korterskortið

Hjólreiðamaður í Reykjavík getur auðveldlega lagt fimm kílómetra að baki á fimmtán mínútum. Þessi niðurstaða er athyglisverð í ljósi þess að 60% bílferða í Reykjavík spanna aðeins þrjá kílómetra eða minna. Á Umhverfissviði var kannað hversu langt hjólreiðamaður getur ferðast á 15 mínútum eftir aðalstígum borgarinnar. 

 „Við ákváðum að kanna út frá búsetumiðju Reykjavíkur hvers langt hægt væri að hjóla á fimmtán mínútum,“ segir Pálmi Freyr Randversson sérfræðingur í samgöngumálum hjá Umhverfissviði Reykjavíkurborgar. Búsetumiðjan er í nánd við Menntaskólann við Sund í Heima- og Vogahverfinu og hjólaði Pálmi þaðan eftir hjólreiðastígum borgarinnar, fyrst upp í Grafarvog. „Það kom mér á óvart hversu langt ég var kominn þegar mínúturnar fimmtán runnu út,“ segir hann – og var þá kominn út fyrir voginn sjálfan. Pálmi hjólaði einnig frá Menntaskólann við Sund upp með Elliðaárdalnum og upp í Breiðholt á 15 mínútum og í þriðja lagi meðfram Miklubrautinni og langleiðina niður á Tjörnina í miðbænum. Í hvert sinn hjólaði hann tæplega fimm kílómetra á 15 mínútum. Gangandi vegfarandi er um það bil 15 mínútur að leggja einn og hálfan kílómetra að baki.

Eykur hreyfingu, dregur úr mengun
Pálmi bendir á að ráðlagður dagskammtur hreyfingar er um það bil 30 mínútur og því ættu þeir sem starfa í um 15 mínútna hjólafjarlægð frá heimilum sínum að íhuga þennan samgöngukost. Fjarlægðir í Reykjavík eru því ef til vill ekki eins miklar og margir halda og að hjóla í vinnuna bætir ekki mikið við ferðatímann, því það tekur ávallt dágóðan tíma að fara á bílnum og leggja honum í stæði. Auk þess sparar það fé að skilja bílinn eftir heima og dregur úr loftmengun.

Korterskortið


Umhverfis-og samgöngusvið
Reykjavíkurborgar
Borgartúni 12-14
Sími: 411 8500
Afgreiðsla - 8:20 - 16:15
umhverfissvid@reykjavik.is
Upplýsingar um sviðið

Reykjavíkurborg - Þjónustuver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is