Græn skref í Reykjavík 2009

Græn skref í Reykjavík voru fyrst samþykkt í apríl 2007 með þeim skilaboðum að á næstu árum myndi Reykjavíkurborg stíga stór vistvæn skref og verða til fyrirmyndar í umhverfismálum. Grænu skrefin eru 10. Undir Grænu skrefunum voru árið 2007 skilgreind alls 45 verkefni sem vinna átti að til ársins 2010. Í lok árs 2008 var ljóst að innleiðing þessara verkefna hafði gengið framar vonum og alls 90% þeirra var þá þegar lokið eða innleiðing hafin. Borgarstjórn samþykkti 19. júlí 2009 endurskoðuð Græn skref fyrir árið 2009 en þar eru skilgreind tugir verkefna sem unnin verða á þessu ári. Hér á eftir fylgja þau Grænu skref, sem vísað er til í tillögunni.
MIKLU BETRI STRÆTÓ
Auðveldari greiðslumáti í strætó.
Leiðarvísirinn, leitarvél Strætó verður aðgengilegur í farsímum.
Strætó fær oftar forgang í umferðinni á völdum stofnbrautum.
Tilraun með upphituð strætóskýli í samstarfi við Orkuveituna í Reykjavík.
VERÐLAUNUM VISTHÆFA BÍLA
Reykjavíkurborg markar stefnu um þjónustu við vistvæna bíla.
Tengingum fyrir rafmagnsbíla verði fjölgað.
GÖNGUM LENGRA, HJÓLUM MEIRA
Göngu- og hjólreiðastígurinn frá Ægissíðu upp í Elliðaárdal verður breikkaður.
Hjólreiðaáætlun samþykkt fyrir Reykjavík.
Ný umferðaröryggisáætlun samþykkt fyrir Reykjavík.
Vatnshönum verður komið upp við göngu- og hjólreiðastíginn frá Ægissíðu upp í Elliðaárdal.
Gönguleiðir skólabarna verða merktar og kynntar sérstaklega.
Göngustígar sem tengja búsetusvæði eldri borgara og nálæg útivistarsvæði verða upphitaðir.
Bekkjum og handriðum verður komið fyrir við göngustíga sem tengja búsetusvæði eldri borgara og nálæg
útivistarsvæði.
LIFANDI OG SKEMMTILEG BORG
Pósthússtræti meðfram Austurvelli verður gert að göngugötu í miðbæ Reykjavíkur á góðviðrisdögum.
Miklatún verður endurskipulagt í samráði við íbúa og fyrstu framkvæmdir hefjast.
Götukaflar gerðir að vistgötum í samræmi við umferðarlög.
Aukið framboð matjurtagarða.
Að búa til sælureit. Samstarfsverkefni borgarinnar skilgreind um framlag borgarbúa til að annast eða búa til sælureiti í hverfum borgarinnar.
BETRA LOFT FYRIR ALLA
Mótuð verður loftlagsáætlun fyrir Reykjavíkurborg til tíu ára til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.
500.000 tré verða gróðursett í Reykjavík í landi Reykjavíkur.
Spornað verður við notkun nagladekkja í samráði við ríki og önnur sveitarfélög.
Virkt eftirlit verður með innilofti í byggingum Reykjavíkurborgar.
MEIRI ENDURVINNSLA
Þjónusta við sorphirðu bætt til að auka endurvinnslu.
BYGGJUM VISTVÆN HVERFI
Nýtt aðalskipulag Reykjavíkur verður unnið frá grunni með sjálfbæra þróun að leiðarljósi.
VISTHÆFARI LEIK- OG GRUNNSKÓLAR
Öll hverfi fá eigið náttúrusvæði til útikennslu og umhverfisfræðslu.
HÖLDUM BORGINNI HREINNI
Unnið verður að hreinsun Tjarnarinnar.
Hvatt til betri umgengni í borginni.
REYKJAVÍKURBORG TIL FYRIRMYNDAR
Stofnanir og svið borgarinnar eru til fyrirmyndar í vistvænum rekstri.
Reykjavíkurborg hýsir alþjóðlega ráðstefnu um vistvæn innkaup.
Samgöngustefna fyrir starfsemi Reykjavíkurborgar samþykkt.
...
VINNUSKÓLI REYKJAVÍKUR
Vinnuskóli Reykjavíkur tekur þátt í Grænum skerfum í Reykjavík og er Skóli á grænni grein og tekur með beinum hætti þátt í að bæta umgengni í borginni.
Fyrri skref:
GRÆN SKREF Í REYKJAVÍK 2007