Eldri borgarar

Midborg

 

Reykjavíkurborg býður upp á fjölbreytta þjónustu fyrir eldri borgara.  Sjá nánar upplýsingar um bækling fyrir eldri borgara í Miðborg og Hlíðum.

 

Upplýsingar og ráðgjöf

Hægt er að leita eftir upplýsingum og ráðgjöf í Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða varðandi ýmis mál, s.s. fjármál, tryggingabætur, húsnæðisúrræði, vistunarmat og stuðning. Ráðgjöfin er ókeypis og sími þjónustumiðstöðvarinnar er 411-1600.

 

Félagsstarf

Félagsstarf er í boði fyrir fólk á öllum aldri  í fjórum félagsmiðstöðvum í Miðborg og Hlíðum. Starfandi eru fjórtán félagsmiðstöðvar víðsvegar um borgina og í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Íbúar geta sótt þjónustu óháð því í hvaða hverfi þeir búa.

Í Miðborg og Hlíðum eru eftirtaldar félagsmiðstöðvar:

Bólstaðarhlíð 43                                          sími: 535 2760

Langahlíð 3                                                 sími: 411 2550

Vitatorg, Lindargötu 59                               sími: 411 9450 

Vesturgata 7                                               sími: 535 2740

Nánar um félagsstarf í Reykjavíkurborg

 

Félagsleg heimaþjónusta

Félagsleg heimaþjónusta er fyrir þá sem búa í heimahúsum og geta ekki annast heimilishald eða persónulega umhirðu hjálparlaust. Þjónustan er fyrir alla aldurshópa. Almenn þjónusta er veitt á daginn en hægt er að sækja um innlit eða styttri viðveru á kvöldin og um helgar. Nánari upplýsingar í síma 411-1600 og á síðu Velferðarsviðs.

Umsókn um félagslega heimaþjónustu

 

Heimsendur matur

Þeir sem ekki geta annast matseld sjálfir og sjá sér ekki fært að fara í mat í næstu félagsmiðstöð geta fengið heimsendan heitan mat daglega.Nánari upplýsingar í síma 411-1600 og á síðu Velferðarsviðs.

Umsókn um heimsendan mat

 

Akstursþjónusta aldraðra

Reykvíkingar 67 ára og eldri sem búa í heimahúsum geta fengið akstursþjónustu ef þeir eru ófærir um að nota almenningssamgöngur vegna langvarandi hreyfihömlunar og hafa ekki aðgang að eigin farartæki. Hámarksfjöldiferða er 30 ferðir á mánuði. Nánari upplýsingar má fá í síma 411-1600 og á síðu Velferðarsviðs.

Umsókn um akstursþjónustu

Reglur um akstursþjónustu

 

Þjónustuíbúðir

Þjónustuíbúðir eru ætlaðar fólki sem þarf meiri aðstoð og stuðning en hægt er að veita í heimahúsum  en heilsufar er ekki orðið það slæmt að þörf er fyrir hjúkrunarheimili. Nánari upplýsingar má fá í síma 411-1600 og á síðu Velferðarsviðs.

Umsókn um þjónustuíbúð

Reglur um þjónustuíbúðir fyrir aldraða

 

Dagvist fyrir aldraða

Dagvist er stuðningsúrræði fyrir aldraða sem búa í heimahúsum og þurfa meiri þjónustu en veitt er í félagsmiðstöðvum. Í dagvist er boðið upp á  tómstundaiðju, hreyfiþjálfun, fæði, hvíldarstöðu og aðstoð við böðun. Gestir eru sóttir að morgni og þeim ekið heim síðdegis.

Beiðni um dagvist í Múlabæ og Þorraseli er beint til deildarstjóra viðkomandi dagvistar sem veitir frekari upplýsingar. Beiðni um dagvist fyrir Vitatorg, Fríðuhús og Eir er beint til Minnismóttöku á Landakoti.

Nánari upplýsingar á síðu Velferðarsviðs.

 

Vistunarmat fyrir dvalar- og hjúkunarheimili

Dvalar- og hjúkrunarheimili eru fyrir þá sem geta ekki búið sjálfsætt. Sótt er um vistunarmat fyrir dvalarrými á þjónustumiðstöð með því að fylla út umsókn þar eða á rafrænu Reykjavík.

Vistunarmat fyrir hjúkrunarrými er á vegum ríkisins og hægt er að nálgast umsókn hér á vef landlæknisembættisins.

Nánari upplýsingar um hjúkrunarheimili sem Reykjavíkurborg rekur má finna hér.

 

Heimahjúkrun

Frá Heimaþjónustu Reykjavíkur er veitt hefðbundin heimahjúkrun og heimageðhjúkrun. Markmiðið er að gera þeim sem þjónustunnar njóta kleift að búa heima við sem eðlilegastar aðstæður þrátt fyrir veikindi eða heilsubrest.
Hlutverk heimahjúkrunar er að sinna heimahjúkrun á þjónustusvæðinu og hafa yfirsýn yfir þá heilbrigðisþjónustu og meðferð sem þjónustuþegar Heimaþjónustu Reykjavíkur njóta í heimahúsi.

Nánari upplýsingar um heimahjúkrun og Heimaþjónustu Reykjavíkur má finna hér.

Reykjavíkurborg - Þjónustuver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is