02.03.2010
Sambíóin í Egilshöll
Sambíóin/Kringlubíó og Kvikmyndahöllin ehf. hafa skrifað undir 30 ára samning um leigu á húsnæði undir kvikmyndahús í Egilshöll. Kvikmyndahúsið verður með fjórum sölum sem allir verða á annarri hæð hússins en miða- og sælgætissala verða á jarðhæð.
02.02.2010
Framhaldsskólakynning
Framhaldsskólakynning verður fimmtudaginn 4. febrúar 2010 í Borgarholtsskóla kl. 17:30-19.00. Þar mun foreldrum og nemendum í 9. og 10. bekk gefast gott tækifæri til að hitta fulltrúa fjölmargra framhaldsskóla og fá upplýsingar um inntökuskilyrði, námsbrautir, kennslufyrirkomulag, félagslíf og aðbúnað skólanna.
27.01.2010
Að ná áttum og sáttum - skilnaðarnámskeið
Sjálfstyrkingarnámskeið fyrir fráskilda hefst fimmtudaginn 4. febrúar með opnum fyrirlestri um skilnaði og áhrif þeirra.