12.03.2010
Þorrasel, dagdeild aldraðra 10 ára
Eins og áður hefur verið auglýst verður opið hús í Þorraseli laugardaginn 13. mars. Þá er Reykvíkingum boðið að kynna
sér starfsemi dagdeildarinnar. Kaffi og vöfflur verða á góðu verði og handverk verða seld.
Opið verður á milli 13:00 og 15:00.
Allir velkomnir!
Smellið á fyrirsögn til að sjá myndir úr afmælinu
11.03.2010
Frí lögfræðiaðstoð við Reykvíkinga
Órator félag laganema, undir leiðsögn reynds lögfræðings, mun á næstu vikum bjóða borgarbúum upp á lögfræðilega ráðgjöf á bókasöfnum Reykjavíkurborgar.
Þjónustan er borgarbúum að kostnaðarlausu en mannréttindaráð Reykjavíkurborg styrkti Órator til verkefnisins.
Dagsetningar og staðsetningar framundan:
15.mars kl. 16.00-18.00 Aðalsafn
22.mars kl. 16.00-18.00 Foldasafn
29.mars kl. 16.00-18.00 Gerðubergssafn
12.apríl kl. 16.00-18.00 Aðalsafn