Göngu- og hjólreiðastígar í Reykjavík
Hér er að finna kort af göngu- og hjólreiðastígum í Reykjavík. Um PDF-útgáfur er að ræða. Efst er kort sem sýnir alla stíga á Höfuðborgarsvæðinu en þar fyrir neðan eru hlutakort sem sýna hverfin í nágrenni áningastaða í Reykjavík.
Göngu- og hjólastígakerfið í Reykjavík er byggt upp á sama hátt og númerakerfi íslenska vegakerfisins. Þannig er Stígur nr.1 hugsaður sem framlenging af Þjóðvegi 1 innan borgarmarkanna. Hann tengist Vesturlandsvegi efst í Mosfellsbæ, liggur meðfram ströndinni, gegnum Grafarvogshverfið, upp Elliðaárdalinn og tengist Suðurlandsvegi ofan við Rauðhóla.
Þessi númer eru síðan notendum til glöggvunar bæði á kortunum og með sambærilegum merkingum á vegvísum við „gatnamót” göngustíga. Númerakerfið er sameiginlegt fyrir Höfuðborgarsvæðið og reyndar er mögulegt að nota það fyrir göngu- og hjólastíga á landinu öllu. Sem dæmi má nefna að Stígur 4 nær frá Sæbraut og alveg suður á Hvaleyrarholt í Hafnarfirði. Númerakerfið er unnið eftir danskri fyrirmynd.
Með uppbyggingu göngu- og hjólastígakerfisins er íbúum og gestum gert kleyft að ferðast hjólandi eða gangandi um borgina á öruggan, aðlaðandi og vistvænan máta. Lögð hefur verið áhersla á að beina hjólagörpum á Þjóðvegi 1 inn á stígakerfið eins fljótt og auðið er. Þetta eykur öryggi þeirra, auk þess að bæta almennt umferðaröryggi í borginni. Víða eru göngubrýr eða undirgöng undir aðalumferðaæðar og stígar eru lagðir um vinsælar útivistarperlur eins og Elliðaárdalinn og Ægissíðu.
Settir hafa verið upp sex áningastaðir, þar sem upplagt er að kasta mæðinni og njóta útsýnisins. Á öllum áningastöðum eru hjólastandar, bekkur, ruslatunna og kortastandur með korti af nánasta umhverfi. Á bakhliðinni er síðan yfirlitskort af borginni. Þessi kort má skoða hér fyrir neðan.
Á hverju sumri er unnið að viðhaldi og uppbyggingu stígakerfisins og eru kortin uppfærð reglulega til samræmis við það:
Yfirlit yfir alla göngu- og hjólreiðastíga (PDF útgáfa)
Elliðárdalur og nágrenni (PDF-útgáfatgáfa)
Fossvogur og nágrenni (PDF-útgáfa)
Grandi og nágrenni (PDF-útgáfa)
Korpúlfsstaðir og nágrenni (PDF-útgáfa)
Gullinbrú og nágrenni (PDF-útgáfa)
Laugardalur og nágrenni (PDF-útgáfa)
Kort gefið út í tilefni Samgönguviku í Reykjavík 2005 (PDF-útgáfa)