Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Vesturhöfn - Grandagarður

Í samræmi við 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst tillaga að breytingu á AðalskipulagiReyjavíkur 2001-2024, vegna landnotkunar við Grandagarð í Vesturhöfn.

Vesturhöfn.

Breyttir skilmálar um landnotkun við Grandagarð.

Breytingartillagan felur í sér að á lóðum við Grandagarð nr. 15-101 (oddatölur), verði heimiluð verslun og þjónusta sem ekki fellur undir hafnsækna starfsemi.

Aðalskipulagsbreytingin (PDF)

Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 26. júní 2009 til og með7. ágúst 2009. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is.Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna.Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 7. ágúst 2009.Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.

Reykjavík, 19. júní 2009 Skipulagsstjóri Reykjavíkur