Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Lambhagavegur 11A

Lambhagavegur 11A, breyting á deiliskipulagi

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsstjóra 12. febrúar 2010 var lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Vesturlandsvegar-Halla vegna færslu lóðar nr. 11A við Lambhagaveg samkvæmt uppdrætti skipulags- og byggingarsviðs, dags. 5. febrúar 2010.

Deiliskipulagstillagan: (PDF)

Með vísan til 7. mgr. 43. gr. laga nr. 73/1997 er eftirtöldum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna:

Húseigendum að Lambhagaveg 5 og 11.

Bent skal á að leigutakar húsnæðis á ofangreindum lóðum teljast einnig til hagsmunaaðila og skulu húseigendur kynna tillöguna fyrir þeim.

Nánari upplýsingar eru veittar hjá Skipulags- og byggingarsvið, verkefnisstjóri er Björn Ingi Edvardsson.

Kynning hefst þann 23. febrúar og skal athugasemdum við ofanskráða tillögu komið til skipulagsstjóra skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is eigi síðar en 23. mars nk.

Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast samþykkja hana.

F.h. skipulagsstjóra

Björn Ingi Edvardsson