Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

List og menning í leikskólastarfi

05.11.2009

Dagskráin "Krummi krunkar úti" fyrir leikskólabörn í Gerðubergi

Gerðuberg býður upp á skemmtilega og fræðandi dagskrá um krumma fyrir eldri börn leikskóla (fædd 2004 og 2005) og yngstu börn grunnskóla (fædd 2003). Dagskráin er í umsjón Báru Grímsdóttur og Chris Foster. Þau eru frábært tvíeki þegar þjóðleg tónlist er annars vegar og því um einstaka upplifun að ræða fyrir börnin. Krummi krunkar úti verður í boði fyrir hádegi á mánudögum og miðvikudögum valda daga í mars og apríl. Sjá dagskrá hér.

 

SINFÓNÍUTÓNLEIKAR FYRIR LEIKSKÓLABÖRN

Elstu börnum leikskólans er boðið á tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Háskólabíói föstudaginn 16. apríl fyrir hádegi. Í ár verður það ný saga um Maxímús. Nánari upplýsingar fást hjá Ingveldi H. Björnsdóttur Leikskólasviði.

 

BARNAMENNINGARHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK 19.-25. APRÍL

Fyrsta Barnamenningarhátíð Reykjavíkur verður haldin vikuna 19. - 25. apríl.  Með henni er ætlunin að skapa vettvang fyrir barnamenningu og menningarstarfsemi fyrir börn. Markmið hátíðarinnar er líka að efla umræðu um gildi barnamenningar fyrir samfélagið og gera hana sýnilega.   

Vonast er til að barnamenningarhátíð verði grundvöllur fyrir skapandi tilraunastarf og samvinnu í borgarhverfum. Á hátíðinni gefst tækifæri fyrir börn og starfsfólk skóla til að sýna listrænar afurðir vetrarins, búa til viðburði eða vinnustofur með það að markmiði að hvetja börn til dáða á sviði lista og skapandi starfs. 

Að skipulagningu hátíðarinnar koma Reykjavíkurborg, grunn- og leikskólar, söfn og aðrar menningarstofnanir, íþrótta- og frístundafélög auk frjórra einstaklinga um alla borg. Tengiliður á Leikskólasviði er Fríða Bjarney Jónsdóttir og á Menntasviði Laufey Ólafsdóttir.

Hverfisfulltrúar leikskólanna og tengiliðir við verkefnisstjórn Barnamenningarhátíðar eru: 

·Breiðholt: Fanný Heimsdóttir leikskólanum Ösp

·Grafarholt/Árbær: Sigríður Þórðardóttir leikskólanum Árborg

·Grafarvogur: Anna Kristín Sigurbjörnsdóttir leikskólanum Klettaborg

·Laugardalur/Háaleiti: Sigurhanna Sigurjónsdóttir leikskólanum Vinagerði

·Miðborg/Hlíðar: Inga Jóna Hilmisdóttir leikskólanum Njálsborg

·Vesturbær: Kristín Hildur Ólafsdóttir leikskólanum Sæborg og Olga S. Olgeirsdóttir leikskólanum Gullborg.

 

KYNNINGARFUNDUR FYRIR LEIKSKÓLA UM LIST OG MENNINGU Í REYKJAVÍK 2. OKTÓBER

Sjá skýrslu um aukið samstarf leikskóla og listaskóla
Sjá menningarstefnu Reykjavíkur
Sjá hvað er í boði fyrir leikskólabörn hjá Borgarbókasafni Reykjavíkur
Sjá glærur um fræðslu hjá Minjasafni Reykjavíkur
Sjá glærur um fræðslukosti hjá Listasafni Reykjavíkur

2.-4. desember 2009 var haldin hér á landi norræn ráðstefna um skapandi starf meðal barna og unglinga undir yfirskriftinni Innovation and Creativity in the hands of the young. Sjá meira um ráðstefnuna

Tengiliður Leikskólasviðs við listaskóla og menningarstofnanir er Fríða Bjarney Jónsdóttir.

List og menning í leikskólastarfi