Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs

01.12.2008

Skólahald í óveðriGefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra.

Aðaláherslan er á að foreldrar meta í hverju tilviki hvort þeir vilja halda börnunum heima en verða þá að tilkynna það sem leyfisbeiðni til skólans. Einnig er áhersla á að skólarnir sjái til þess að það verði alltaf einhver starfsmaður í skólunum til að taka á móti þeim sem mæta þrátt fyrir að senda hafi verið út tilkynning um að skólahald falli niður.

Um er að ræða tvö viðbúnaðarstig vegna óveðurs:

VIÐBÚNAÐARSTIG 1:
Röskun verður á skólastarfi vegna erfiðleika starfsfólks og nemenda við að komast til skóla – foreldrar fylgi börnum í skólann.

VIÐBÚNAÐARSTIG 2:
Skólahald fellur niður. Hér er fyrst og fremst átt við yngri börn en það er algjörlega á ábyrgð foreldra og háð mati þeirra. Þegar rætt er um foreldra er átt við foreldra og aðra forráðamenn.

Hér fyrir neðan eru viðbragðsáætlanir í PDF formi - annars vegar fyrir starfsfólk grunnskóla og hins vegar fyrir foreldra og forráðamenn:

Röskun á skólastarfi vegna óveðurs - Reglur um viðbrögð starfsfólks í grunnskólum

Röskun á skólastarfi vegna óveðurs - Tilmæli um viðbrögð foreldra og forráðamanna

Á fleiri tungumálum:

Röskun á skólastarfi vegna óveðurs - Tilmæli um viðbrögð foreldra og forráðamanna -
Enska

Röskun á skólastarfi vegna óveðurs - Tilmæli um viðbrögð foreldra og forráðamanna - Pólska

Röskun á skólastarfi vegna óveðurs - Tilmæli um viðbrögð foreldra og forráðamanna - Rússneska

Röskun á skólastarfi vegna óveðurs - Tilmæli um viðbrögð foreldra og forráðamanna - Spænska

Röskun á skólastarfi vegna óveðurs - Tilmæli um viðbrögð foreldra og forráðamanna - Tælenska