Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Börnin í borginni

30.10.2008

Börnin í borginniÍslenskt samfélag stendur á tímamótum vegna grundavallarbreytinga í efnhagskerfi þjóðarinnar.

Aðilar Reykjavíkurborgar sem sérstaklega vinna með börnum og unglingum hafa tekið höndum saman undir yfirskriftinni Börnin í borginni.

Spurt og svarað um aðgerðir vegna skuldavanda heimilanna - Félags- og tryggingamálaráðuneytið

 Hlutverk og markmið teymisins Börnin í borginni er að:
  • - Fylgjast með líðan barna og starfsfólks í leikskólum, grunnskólum og í frístundastarfi á vegum Reykjavíkurborgar.
  • - Leita leiða til að minnka og hafa áhrif á vanlíðan vegna álags og streitu.
  • - Fylgjast með tölulegum upplýsingum sem gefa vísbendingar um breytta fjárhagsstöðu heimilanna.
  • - Stuðla að samvinnu þeirra aðila sem koma að málefnum barna og unglinga í borginni. Í teyminu sitja aðilar frá Menntasviði, Leikskólasviði, Velferðarsviði, Íþrótta- og tómstundasviði, Mannréttindaskrifstofu og Menningar- og ferðamálasviði. Auk þeirra eru fulltrúar skólastjóra, kennara og foreldra í teyminu.

Nánari upplýsingar um teymið eru í fréttabréfi, sjá hér fyrir neðan.

Rafrænt fréttabréf teymisins:Mynd: 3. tbl. fréttabréfs samstarfshópsins Börnin í borginni mars 2009

1. tbl. nóvember 2008
2. tbl. desember 2008
3. tbl. mars 2009

 Ertu með upplýsingar eða hugmyndir?

Börnin í borginni

  • - Upplýsingar um eitthvað sem tengist efnhagsástandinu, t.d. um líðan barna, fjölskyldna,starfsmanna í leik- og grunnskólum eða í frístundastarfi?
  • - Hugmynd að einhverju sem hægt er að gera til aðstoðar fólki sem á um sárt að binda?
  • - Upplýsingar um úrræði sem í boði eru fyrir börnin og þá sem starfa með þeim við þær aðstæður sem nú eru (og ekki eru þegar tilgreind hér á síðunni)?.
  • - Erindi sem þú telur eiga heima á fundi borgarteymisins Börnin í borginni?

Sendu tölvupóst á netfangið bornin@reykjavik.is

 

Aðstoð við fjölskyldur
Oft snúa foreldrar sér beint til leikskóla/grunnskóla síns barns með ábendingar eða fyrirspurnir sem tengjast aðstæðum fjölskyldunnar og haft gætu áhrif á líðan barnsins, stöðu og skólagöngu. Oft er hægt að greiða úr málum innan skólans. Í þjónustumiðstöðvum Reykjavíkurborgar er boðið upp á ráðgjöf og aðstoð fyrir fjölskyldur.


Þjónustuver borgarinnar vísar á viðeigandi aðila, sími 4 11 11 11.
Þjónustuverið svarar og beinir fyrirspurnum um aðstoð og gefur samband við allar stofnanir borgarinnar m.a.:
- Leikskóla í Reykjavík
- Grunnskóla í Reykjavík
- Frístundaheimili
- Þjónustumiðstöðvar í öllum hverfum.

Hjá Velferðarsviði Reykjavíkur er boðið upp á þjónustu fyrir fjölskyldur og einstaklinga. Sviðið hefur nú gert yfirlit yfir þá þjónustu sem í boði er þarog öðrum aðilum í samfélaginu.

Sjá: Þjónusta við einstaklinga og fjölskyldur

Þjónustumiðstöðvar Reykjavíkurborgar

Aðilar og málaflokkar tengdir börnum

Lýðheilsustöð - Hugum að velferð barna

Miðstöð heilsuverndar barna

Barnaverndastofa

umhuga.is - Upplýsingavefur um geðheilsu barna og ungmenna

Verndum bernskuna - Heilræði foreldra og aðra uppalendur

Umboðsmaður barna