Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Menntamálaráðherra og borgarstjórn Reykjavíkur heiðra skáksveit Rimaskóla

15.09.2008

Menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir bauð skáksveit Rimaskóla ásamt góðum gestum til móttöku í Þjóðmenningarhúsi.Tilefnið var Norðurlandameistaratitill grunnskóla 2008 sem krakkarnir í Rimaskóla unnu glæsilega í lok ágúst.

Ráðherra afhenti skáksveitinni myndarlega bókargjöf. Yfirmenn menntamála Reykjavíkurborgar voru viðstaddir athöfnina. Kjartan Magnússon formaður Menntaráðs flutti ávarp og færði Rimaskóla 10 skákklukkur frá Borgarstjórn Reykjavíkur í tilefni þessa frábæra árangurs. Helgi Árnason skólastjóri Rimaskóla þakkaði glæsilegt boð og góðar gjafir. Hann afhenti Mennatmálaráðherra, formanni Menntaráðs, Ragnari Þorsteinssyni fræðslustjóra, Guðrúnu Þórsdóttur skólastjóra Vinnuskólans og forystumönnum skákhreyfingarinnar að gjöf bókina "Leiðin að gullinu" sem greinir frá í máli og myndum glæsilegum sigrum skáksveitar Rimaskóla á skólaárinu 2007 - 2008.

Glæsileg móttökuathöfn. f.v. Kjartan Magnússon formaður Menntaráðs, Ragnar Þorsteinsson fræðslustjóri, Guðmundur Árnason ráðuneytisstjóri, Óskar Ármannsson Menntamálráðuneyti, Þorgerður Katrín menntamálaráðherra og skáksveit Rimaskóla.

Þorgerður Katrín menntamálaráðherra tekur við 1. eintaki bókarinnar "Leiðin að gullinu", gjöf frá Rimaskóla.

Kjartan Magnússon formaður Menntaráðs Reykjavíkur flutti ávarp og færði Rimaskóla skákklukkur að gjöf.

 

Þorgerður Katrín menntamálráðherra, Sigríður Björg Helgadóttir, Jón Trausti Harðarson, Dagur Ragnarsson, Hörður Aron Hauksson, Hjörvar Steinn Grétarsson, Helgi Árnason skólastjóri og Davíð Kjartansson þjálfari

Ljósmyndir: Valur Óskarsson