Um Þjónustumiðstöðina

Þjónustumiðstöð Laugardals, Háaleitis og Bústaða
Síðumúla 39, 108 Reykjavík
Sími: 411-1500
Fax: 411-1599
Netfang: laugardalur.haaleiti@reykjavik.is
Þjónustumiðstöðin er opin alla virka daga frá kl. 8:30-16:00
Þjónustumiðstöðvar eru í sex hverfum borgarinnar og sinna þjónustu við einstaklinga og fjölskyldur, sérfræðiþjónustu við leik- og grunnskóla, frístundaráðgjöf auk almennrar upplýsingagjafar um starfsemi Reykjavíkurborgar. Þær bera ábyrgð á framkvæmd forvarnarstefnu Reykjavíkurborgar og þar fer fram faglegt samstarf með áherslu á samþætta þjónustu
Við þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis starfa yfir 300 einstaklingar. Framkvæmdastjóri er Aðalbjörg Traustadóttir. Deildarstjóri félagsþjónustudeildar er Kristjana Gunnarsdóttir. Deildarstjóri sérfræðiþjónustu skóla er Helgi Hjartarson og deildarstjóri stuðningsþjónustudeildar er Þórdís L. Guðmundsdóttir.
Starfsstöðvar Þjónustumiðstöðvarinnar eru að Álfalandi 6, Búðagerði, Dalbraut 18-20, Dalbraut 21-27, Furugerði 1, Gunnarsbraut 51, Hvassaleiti 56-58, Hæðargarði 31, Norðurbrún 1 og Sléttuvegi 11. Starfsstöðvarnar sinna ýmis konar þjónustu, meðal annars félagsstarfi, rekstri þjónustuíbúða, heima- og stuðningsþjónustu.
Þjónustumiðstöðin rekur auk þessara starfsstöðva, þrjá búsetukjarna fyrir geðfatlaða, en þeir kjarnar eru liður í átaki Félagsmálaráðuneytis um uppbyggingu búsetuúrræða fyrir geðfatlaða (Straumhvarfaverkefni).
Starfsmenn þjónustumiðstöðvar Laugardals og Háaleitis sinna sérstaklega tveimur þekkingarmiðstöðvarverkefnum undir kjörorðinu: „Samfélag fyrir alla”. Verkefnin miðast að eldri borgurum og fötluðum einstaklingum.