Skjaldarmerki ReykjavíkurÞann 10. ágúst 2004 samþykkti Borgarráð Reykjavíkur nýjar reglur um notkun á merki Reykjavíkurborgar. Þar segir m.a:
Skjaldarmerki Reykjavíkurborgar er tvær öndvegissúlur og þrjár öldulínur á gotneskum skildi. Litur merkisins er blár en öndvegissúlur og öldur eru hvítar. Nota má svartan lit í stað þess bláa. Sé merkið prentað á dökkan grunn er heimilt að draga hvíta línu í kringum það.
Með skjaldarmerki borgarinnar er notuð leturgerðin Berthold Akzidens Grotesk. Skjaldarmerkið skal annað hvort staðsett fyrir framan texta eða miðjað með texta. Heitið Reykjavíkurborg er notað í yfirtitli og heiti viðkomandi embættis, deildar eða stofnunar þar undir.
Hönnunarstaðall og reglur um notkun
Hönnunarstaðall (pdf skjal 8,71 MB) Reglur um notkun á merki Reykjavíkurborgar (pdf skjal 144 KB)
Merkið á tölvutæku formi
Merkið í pdf formi (gegnsætt) Merki-skjöldur vinstra megin og texti hægra megin
Merkið á jpeg formi Merki - miðjað með skildi fyrir ofan Merki - skjöldur vinstra megin og texti hægra megin
Merkið á vektora formi (EPS) Skjöldur án texta Skjöldur með texta hægra megin Skjöldur með texta í miðju Skjöldur - kynningarútgáfa ferhyrningur
Fyrirspurnir vegna skjaldamerkis berist til Huldu Gunnarsdóttur upplýsingafulltrúa á netfangið hulda.gunnars@reykjavik.is
|