Hjólreiðar

Hjólreiðar eru sjálfbær samgöngumáti. Reiðhjólin eru knúin áfram með orku þess sem hjólar. Öll börn eiga að nota hjálma og æskilegt er að þau sæki fyrirmynd sína til fullorðinna. Í Reykjavík eru hjólastígar oftast samtengdir göngustígum (sjá kort). Ef hjólastígur er ekki fyrir hendi skal hjólað á götum eða gangstéttum nema annað sé tekið fram. Þar sem reiðhjól eru áberandi í borgarmyndinni skapast hreyfanleiki og er reiðhjólamenning merki um heilsusamlegan lífsstíl. Kostnaður við hjólreiðar er lítill ef hann er borinn saman við rekstur einkabílsins.
Sjá hjólreiða- og göngustígakort
Hjólreiðar að vetri til