18.12.2006

Helstu verkefni 2007

Helstu verkefni á sviði samgöngumála árið 2007 verða eftirfarandi: 
• Áfram verður tekið þátt í  Evrópskri samgönguviku.
• Unnið verður að gerð áætlunar um hjólreiðavæn íbúðahverfi og mótuð langtímaáætlun um verkefnið.  Þessi áætlun skal vera tilbúin á árinu 2007.
• Unnið verður að fræðslu um tengingu heilsu og samgangna með gerð korta og fræðsluefnis.  Sérstaklega skal hugað að gerð upplýsingaefnis er varðar hjólreiðar í borginni á árinu 2007.
• Settur aukinn kraftur í að virkja starfsmenn borgarinnar sem fyrirmyndir á vistvænum ferðum um borgina.  Hafið verði samstarf við Framkvæmdasvið og Höfuðborgarstofu um aukna notkun hjóla í þeirra vinnuferðum.
• Skoða skal möguleikann á gjaldfrjálsum strætó fyrir tiltekna hópa í samráði við Strætó bs. og athuguninni skilað á árinu 2007
• Athuga möguleikann á veitingu samgöngustyrkja til handa starfsmönnum Reykjavíkurborgar óháð ferðamáta.  Athugun skal skilað á árinu 2007.
• Hefja viðræður við valda stofnun og/eða fyrirtæki um fleytitíðafyrirkomulag til að draga úr umferð á álagstímum.  Niðurstöður skulu liggja fyrir á árinu 2007.
• Framfylgja samstarfssamningi við Umferðarstofu
• Hafinn verður undirbúningur að mislægum gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar.  Þeirri vinnu verði lokið á árinu 2007.
• Kannað verði með möguleika á umferð í stokkum og/eða göngum í Reykjavík.  Niðurstöður þessarar vinnu skal vera lokið á árinu 2007.
• Áætlun um Sundabraut skal vera lokið á árinu 2007 og hugað sérstaklega að lausnum fyrir hjólandi og gangandi.
• Lögð verði fram áætlun um hvernig skuli bæta þjónustu og fjölga farþegum strætó.
• Lögð verði fram áætlun um breikkun og upphitun göngustíga á völdum svæðum borgarinnar.


Umhverfis-og samgöngusvið
Reykjavíkurborgar
Borgartúni 12-14
Sími: 411 8500
Afgreiðsla - 8:20 - 16:15
umhverfissvid@reykjavik.is
Upplýsingar um sviðið

Reykjavíkurborg - Þjónustuver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is