03.08.2007

Upplýsingar um dagblaða- og fernugáma

Staðsetning grenndargáma

Einföldum málið - tvöföldum kerfið

Til að einfalda flokkun og skil á fernum og blöðum í grenndargáma var ákveðið af hálfu SORPU og sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu að tvöfalda kerfið. Tilgangurinn er að halda annars vegar dagblöðum, tímaritum og auglýsingapósti og hins vegar fernum aðskildum. Gámar verða nú ýmist tvískiptir, fernur öðrum megin og blöð hinum megin, eða að sérstakur gámur verður undir hvorn flokk. Gámarnir eru greinilega merktir og augljóst hvar á að setja fernur og hvar á að setja dagblöð, tímarit og auglýsingapóst.

Tvískiptir gámar - losun án umbúða
Fernur: Fernum af öllum gerðum er hægt að skila í grenndargáma eða á endurvinnslustöðvum SORPU. Svo ekki komi ólykt við geymslu skal skola fernurnar vel áður en þeim er skilað. Gott er að brjóta þær saman. Mikilvægt er að setja fernur í fernuhólfin eða fernugámana án umbúða. Því skal losa fernurnar úr plastpokum eða öðrum umbúðum og setja þær í lausu í fernuhólfin.
Blöð: Dagblöð, tímarit og auglýsingapóst skal setja í blaðahólfin eða blaðagámana, einnig án umbúða. Losið því blöðin úr plastpokum eða öðrum umbúðum og setjið þau í lausu í blaðahólfin.

Hráefni í nýjar vörur
Allur flokkaður pappírsúrgangur endar í móttökustöð SORPU í Gufunesi. Hann er síðan sendur til Svíþjóðar þar sem hann er endurunninn í margvíslegar afurðir, s.s. eldhúspappír, salernispappír o.fl.
Fernurnar eru sendar til endurvinnslu til Il Recycling í Svíþjóð.

Góð flokkun - forsenda endurvinnslu
Með því að flokka fernur og blöð og skila þeim í grenndargáma vinnst tvennt:
- Verðmætt hráefni er endurnýtt
- Dregið er úr því landi sem leggja þarf undir sorpurðun

Góð flokkun er lykilatriði


Umhverfis-og samgöngusvið
Reykjavíkurborgar
Borgartúni 12-14
Sími: 411 8500
Afgreiðsla - 8:20 - 16:15
umhverfissvid@reykjavik.is
Upplýsingar um sviðið

Reykjavíkurborg - Þjónustuver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is