23.02.2009
Gjaldskrá
Gjaldskrá Sorphirðu Reykjavíkur 2010
Verð á sorphirðu árið 2010
Svört: 240 lítra sorpílát: 16.300 kr
Græn: 240 lítra sorpílát: 8.150 kr
Bláa tunnan er 7.400 kr. á ári.
Merktir pokar með sorphirðugjaldi inniföldu kosta 620 kr stk X 5 í búnti = 3.100
kr. Merktir pokar eiga að fást á öllum Select stöðvum í Reykjavík og á skrifstofu
Umhverfis- og samgöngusviðs Borgartúni 12-14.
Við upphaf þjónustu og við fjölgun íláta greiðast kr 2.800 fyrir flutning og
skráningu. Breyting á þjónustu og fækkun kostar ekkert.
Pantanir sendar á netfangið: sorphirda@reykjavik.is
Upplýsingar í síma: 411 1111
Hvernig er sorphirðugjaldið hugsað?
Sorphirðugjald í Reykjavík miðast við fjölda, stærð og tíðni losanna á sorpílátum við íbúðarhús. Íbúar greiða þannig m.v. magn af sorpi sem fellur til hjá þeim (rýmd sorps). Þeir sem kjósa að flokka sorp til endurvinnslu geta fækkað ílátum, stærð þeirra eða losunartíðni og þannig lækkað sorphirðugjöld sín. Í fjöleignarhúsum tekur hússtjórn eða meirihluti eigenda ákvörðun um fjölda sorpíláta og sorphirðugjöldum er skipt á íbúa eftir hlutfallstölu eignarhluta.
Sorphirðugjald fyrir hverja 240 L sorptunnu sem losuð er vikulega (svarta sorptunnan) er 16.300 kr. árið 2009. Gjald fyrir hverja 240 L sorptunnu sem losuð er aðrahverja viku (græna sorptunnan) er 8.150 kr./ár. Gjald fyrir hverja 240 L sorptunnu fyrir blaðasorp sem losuð er þriðjuhverja viku (bláa sorptunnan) er 7.400 kr./ár. Sorphirðugjald fyrir sorpker sem losað er vikulega er 44.825 kr./ár. Sé sorptunnum fjölgað, fækkað eða losunartíðni breytt á árinu miðast sorphirðugjaldið við þá viku sem breytingarnar fara fram.
Mengunarbótareglan, um að sá geldur sem veldur, er höfð að leiðarljósi. Íbúar sem kjósa að flokka sorpið sitt til endurvinnslu og draga þannig úr fjárhagslegum og umhverfislegum kostnaði við sorphirðu og förgun á sorpi greiða þannig minna. Í Reykjavík eru að jafnaði um 0,75 240L sorpílát á hverju heimili. Sorphirðugjald á hvert heimili er því að jafnaði um 12.225 kr./ár.
Breyting á bláu tunninni
Bláa tunnan sem Reykjavíkurborg hefur boðið upp á undir dagblöð, auglýsingapóst og tímarit nýtist frá 1. febrúar einnig undir fernur, umbúðapappír, prentpappír, sléttan pappa og karton. Nú má setja það sama í bláar tunnur og bláa grenndargáma.
Reykjavíkurborg býður upp á tvær tunnur fyrir almennt sorp. Svarta sem losuð er vikulega, græna sem losuð er hálfsmánaðarlega. Bláa tunnan er hins vegar undir endurvinnanlegan pappa og pappír og er losuð er á þriggja vikna fresti.
Þessi breyting er í samræmi við breytinguna á grenndargámum á Höfuðborgarsvæðinu og má nú setja það sama í bláu tunnurnar og bláu gámana sem er að finna má á 80 stöðum, t.d. eggjabakka og pakkningar utan af matvælum.
Bláa tunnan er leið til sparnaðar og betri flokkunar fyrir heimili og samfélag í formi endurvinnslu. Nefna má sem dæmi að íbúar í fjölbýlishúsi með þremur íbúðum greiða samtals 48.900 kr. á ári ef þar eru þrjár svartar tunnur en 40.000 kr. fyrir tvær svartar og eina bláa. Gjald fyrir bláa tunnu er 7.400 kr. á ári, 16.300 fyrir svarta og 8.150 fyrir græna.
Tenglar:
Dregur úr óflokkuðu heimilissorpi um 20% (2010)
Margir endurskoða val á sorptunnum 2009
Upplýsingar um sorphirðugjald
Sorpa - upplýsingar um grenndargáma.