Sorphirða
Sorphirða Reykjavíkurborgar heyrir undir Skrifstofu neyslu- og úrgangsmála og eru skrifstofurnar til húsa á Borgartúni 12-14 , 3. hæð.
Innan sorphirðunnar eru 10 sorphirðubílar, ca 4-5 starfsmenn á hverjum bíl, að hirða sorp frá heimilum. Hver tunna er að jafnaði losuð einu sinni í viku en íbúum í sérbýli er jafnframt boðið uppá losun á tveggja vikna fresti.
Sorphirða hefur yfirumsjón með þjónustusamningum við Sorpu bs. um rekstur endurvinnslustöðva og annast uppgjör til byggðasamlagsins vegna böggunar, flokkunar og urðunar á úrgangi.
Flokkun sorps
Endurvinnslustöðvar
Allar upplýsingar sem þú þarft áttu að finna á eftirfarandi síðum. Ef þú hins vegar finnur ekki þær upplýsingar sem þú leitar að getur þú sent póst á:
sorphirda@reykjavik.is