Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Samantekt hverfafunda um skipulagsmál

28.01.2010

Eftir nýafstaðna hverfafundi í öllum 10 hverfum borgarinnar í október og nóvember var unnin samantekt upp úr niðurstöðum þeirra. Eins og við var að búast snérust hugmyndir og lausnir íbúa ýmist um heildarsýn á málaflokka eða staðbundnar lausnir í einstökum hverfum. Í samantektinni er lögð áhersla á þau atriði sem komu fram í fleiri en einu hverfi og túlka má sem rauða þræði í skoðunum borgarbúa á skipulagsmál.

Í upphafi fundanna kynntu Júlíus Vífill Ingvarsson formaður skipulagsráðs, Haraldur Sigurðsson, skipulagsfræðingur og Ólöf Örvarsdóttir, skipulagsstjóri stuttlega vinnu við nýtt aðalskipulag. Meginverkefni fundarins var hins vegar að laða fram hugmyndir þátttakenda og var það gert með virkri og skemmtilegri hópavinnu.

Það sem kristallaðist í öllum hverfunum var m.a. að:

· Hverfin verði sjálfstæðari einingar, einskonar þorp í borginni og að í hverju hverfi sé ákveðinn hverfiskjarni sem byggi á grunnþjónustu, hverfisverslunum og mannlífi.

· Umferð gangandi og hjólandi verði endurskoðuð með það að leiðarljósi að gera hjólreiða- og göngustíga að augljósum valkosti í samgöngukerfi borgarinnar

· Skipulag og viðhald grænna svæða borgarinnar verði bætt og jafnframt þannig stefnt að aukinni notkun þeirra

Nánar má kynna sér samantektina í eftirfarandi PDF skjölum, þessi skjöl eru einnig að finna í Hugmyndabankanum.

Samantekt um um hverfafundina (PDF)

Viðauki I hugmyndabanki eftir hverfum (PDF)

Viðauki II hugmyndabanki eftir málaflokkum (PDF)

Viðauki III ábendingar úr hugmyndasmiðju (PDF)