Byggingarleyfisumsóknir

Umsóknum um byggingarleyfi er veitt móttaka í þjónustuveri Reykjavíkurborgar í Borgartúni 12-14 gegn greiðslu skráningargjalds kr. 7.700. Nýbyggingar fá afgreiðslu á fundi skipulagsráðs en önnur erindi á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa. Uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi skulu unnir af hönnuði sem til þess hefur fengið löggildingu umhverfisráðherra. Fyrirspurnum varðandi byggingarmál er veitt móttaka án endurgjalds og ekki er krafist sérstakra réttinda af fyrirspyrjanda.

1.    Umsóknareyðublaðið

Fylla skal út umsóknareyðublað fyrir umsóknir um byggingarleyfi og fyrirspurnir um byggingarmál. Umsækjandi eða umboðsmaður hans skulu útfylla reiti eitt til sex eftir eðli umsóknar.

Í reit eitt skal rita nafn umsækjanda. Ef umsækjandi er ekki eigandi fasteignar skal umboð eiganda eða eigenda fylgja.
Í reit tvö skal skrá heiti lóðar (t.d. Hallgerðargata 10), staðgreini eða landnúmer lóðar, matshluta- og fastanúmer ef um breytingu á eldra mannvirki er að ræða (sjá www.fmr.is, Fasteignaskrá Íslands).
Í reit þrjú skal krossa við tegund byggingar.
Í reit fjögur skal krossa við eðli framkvæmdar og aðalbyggingarefni. Ný framkvæmd merkir hér nýtt sjálfstætt mannvirki og aðalbyggingarefni er oftast efni burðarvirkja.
Í reit fimm skal skrá fjölda uppdráttarblaða, krossa síðan við þau fylgiskjöl og gögn sem fylgja umsókninni. Upptalningu í reit fimm má nota sem gátlista yfir þau gögn sem skila þarf með umsókn eftir eðli hennar.
Sá sem fyllir út eyðublaðið skal rita nafn sitt í reit sex og ábyrgjast þar með að upplýsingar á blaðinu séu réttar.
Þegar umsókn hefur verið tekin fyrir á fundi eru umsækjanda og hönnuði sendar upplýsingar um afgreiðslu erindisins í pósti.

2. Skráningartöflur
Umsóknum um nýbyggingar, viðbyggingar og um breytingar á eldri byggingum sem hafa breytta skráningu í för með sér, skal fylgja skráningartafla í samræmi við skráningarreglur (sjá www.fmr.is, fræðsluefni). Skráningartöflur skulu vera af stærðunni A2 og þær skal jafnframt afhenda á disklingi eða senda í tölvupósti (skranbygg@rvk.is).

3. Móttaka umsókna
Uppdráttum og öðrum gögnum sem varða umsóknir um byggingarleyfi skal skila á skrifstofu byggingarfulltrúa í síðasta lagi á þriðjudegi, viku fyrir fund. Þetta gildir jafnt um ný erindi og erindi sem hefur verið frestað.

4. Aðaluppdrættir
Uppdrættir sem skilað er vegna byggingarmála til samþykktar vegna byggingarleyfis skulu vera brotnir í stærð A2 en að stærð margfeldi þar af samkvæmt ÍST 1, með 185 mm nafnreit neðst í hægra horni og reit í hægra upphorni fyrir áritun byggingarfulltrúi. Uppdráttum skal skilað í 2 eintökum og áritaðir eigin hendi af aðalhönnuði þar sem fram kemur læsileg kennitala hans.
 
Pfd lógó Umsóknareyðublað (PDF)
 

borgartún 12-14
Skipulags- og byggingarsvið
Reykjavíkurborgar
Borgartúni 12 - 14
Sími: 411 3000
skipulag@reykjavik.is

skipbygg@rvk.is
Upplýsingar um sviðið

Reykjavíkurborg - Þjónustuver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is