Sumarstörf hjá Reykjavíkurborg 2010
Opið verður fyrir umsóknir um sumarstörf hjá Reykjavíkurborg frá 1. mars og umsóknartímabili lýkur 6. apríl.
1. Umsjón með auglýsingu og umsóknum um sumarstörf hefur Hitt Húsið - miðstöð ungs fólks sem heyrir undir Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkurborgar.
2. Markmiðið er að bjóða ungmennum, fæddum 1993 og eldri, almenn sumarstörf og afleysingastörf hjá stofnunum borgarinnar.
3. Þau ungmenni sem lögheimili eiga í Reykjavík hafa forgang í störf hjá Reykjavíkurborg.
4. Umsókn um starf jafngildir ekki ráðningarsamningi.
5. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að vinna með umsóknir og ráða í störf um leið og umsóknir berast. Hér gildir þó ekki „fyrstir koma fyrstir fá“.
6. Sérstakar reglur eru um Skapandi sumarstörf en þar starfar sérstakur faghópur að úrvinnslu umsókna.
7. Einungis er hægt að sækja um störf rafrænt á www.reykjavik.is/sumarstorf.
8. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að breyta reglum þessum án fyrirvara.
Ef umsækjendur hafa ekki aðgang að netinu eru þeir velkomnir í Hitt Húsið að Pósthússtræti 3-5 til að nýta sér tölvur sem þar eru. Starfsfólk er einnig boðið og búið til að aðstoða þá umsækjendur sem ekki eru netvanir.
Nánari upplýsingar veitir:
Hitt Húsið
Pósthússtræti 3-5, 101 Reykjavík
Sími: 411 5500
Netfang: sumarstorf@reykjavik.is